IPT er verslun og þjónustuaðili sem býður upp á afar fjölbreyttar og spennandi lausnir í öryggismálum og eftirlitsbúnaði. Kappkostar fyrirtækið að bjóða reglulega upp á það nýjasta og besta í þessum bransa. Snjallbúnaður hefur rutt sér mjög til rúms á þessu sviði og IPT býður upp á framúrskarandi snjalllausnir fyrir bæði heimili og fyrirtæki. Meðal annas býður IPT upp á dyrasíma, myndavélar, innbrotsviðvörun og brunavörn fyrir heimili. Þá vinnur fyrirtækið mikið fyrir hótel og býður þeim upp á aðgangskerfi, myndavélar, innbrotsviðvörun og brunavörn. Þess má geta að IPT setti upp allan öryggisbúnað í Hörpu.
Kjartan Scheving, framkvæmdastjóri IPT, segir okkur frá þremur áhugaverðum vörum hjá fyrirtækinu en upplýsingar um aðrar vörur er að finna á vefnum ipt.is. Við gefum Kjartani orðið:
„Comelit er ítalskt hátæknifyrirtæki sem framleiðir dyrasíma fyrir heimili, bæði einbýlishús og fjölbýli, stofnað árið 1956. Hjá Comelit er mikið er lagt upp úr hönnun og mjúkum línum, og í boði eru margar gerðir af kerfum, bæði hliðrænum og stafrænum, og bæði myndkerfi og talkerfi. Hægt að setja upp kerfi með bæði bjölluhnappi fyrir hverja íbúð og lyklaborði þar sem valið er númer íbúðar.
Hægt er að hafa myndavélar tengdar kerfunum, t.d. í sameign eða í einbýlishúsum, og getur fólk haft myndavélar við hús ásamt nándarlestri til að opna dyr. Kerfin geta verið tengd nánast hvaða hlut sem er með út- eða inngangseiningum sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga kerfin að notendum.“
Kerfinu raðað saman eftir stærð hússins
Næst segir Kjartan okkur frá IKALL-kerfinu sem hentar jafnt fyrir einbýlishús sem mjög stór fjölbýli:
„IKALL-kerfið er kerfi sem hentar öllu frá einbýli til hundraða íbúða. Kerfið er sett saman úr einingum þannig að því er raðað saman eftir stærð hússins. Það hentar einstaklega vel þegar skipta þarf út gömlum kerfum með lágmarks fyrirhöfn. Með IKALL ertu líka kominn með kerfi sem hefur marga viðbótarmöguleika, til dæmis aukamyndavélar, og þú getur látið kerfið elta þig. Hægt er að sérsníða möguleikana fyrir hverja og eina íbúð og því getur þú valið aðra möguleika fyrir þig en nágranni þinn.
Ikall er 2 víra kerfi sem vinnur á gömlum lögnum frá gamla kerfinu. Þú getur haft öryggiskerfi heimilisins og dyrasímann í einum pakka.“
Dyrasími + app
Kjartan segir okkur loks frá Visto, nýjustu afurðinni frá hinum rómaða, ítalska framleiðanda, Comelit:
„Visto er nýjasta afurð Comelit: Dyrasími sem vinnur eingöngu með appi og hægt er að hafa bæði inni- og útimyndavélar tengdar við appið. Þetta er dyrasími sem veit hvar þú ert og með appi getur hann haft samband við þig, hvar sem þú ert.“
Þess má geta að IPT er með afar góðan afslátt hjá Comelit næstu mánuði og færir þann afslátt beint til viðskiptavina sem geta því fengið hágæða vörur frá Comelit á sérlega góðum kjörum.
Sjá nánar á ipt.is. IPT er til húsa að Skútuvogi 1 G, Reykjavík. Leitið tilboða eða komið með fyrirspurnir í síma 763-8831 eða með tölvupósti á netfangið ipt@ipt.is.