Það eru erfiðir tímar í íslenskum handbolta, sérstaklega hjá karlalandsliðinu, og hafa verið síðustu ár, sérstaklega ef horft er til þess á hvaða stall liðið var komið hér á árum áður. Liðið vann til verðlauna og komst iðulega langt í flestum stórmótum. Verulega hefur dregið úr slíku og er liðið nú annað Evrópumótið í röð úr leik í riðlakeppni. Liðið komst á stórmót sem er afrek en væntingar Íslendinga til liðsins eru meiri eftir ofdekur síðustu ár.
Liðið féll úr leik á Evrópumótinu í Króatíu á þriðjudag, verðskuldað. Liðið tapaði gegn slöku liði Serbíu þar sem þjálfari og leikmenn brugðust á ögurstundu. Geir Sveinsson, þjálfari liðsins, er í óvissu með framtíð sína, en hann vildi nýjan samning áður en mótið hófst. HSÍ hafnaði því og sagði að málin yrðu skoðuð eftir mót. Því er óvíst hvort Geir haldi áfram með liðið, hann gerði ágætis hluti á HM í Frakklandi en Evrópumótið í ár voru sár vonbrigði.
Forveri hans, Aron Kristjánsson, gerði heldur ekki góða hluti og vandamálið líklega stærra en maðurinn sem stendur í brúnni. HSÍ leggst undir feld á næstunni og skoðar hvað sé best í stöðunni, heimildir DV herma að öllum steinum verði velt innan stjórnar HSÍ sem tekur ákvörðun um málið og að draumur margra þar sé að fá Guðmund Þórð Guðmundsson aftur til starfa. Guðmundur náði frábærum árangri með liðið síðast, liðið vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2008. Guðmundur stýrir liði Barein í Persaflóanum. Ljóst er að HSÍ getur aldrei borgað sömu laun og Guðmundur fær þar en hann er einn af þeim möguleikum sem koma til greina.