fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Pressan

Þjóðargersemin Kim Larsen lést í morgun – Ferillinn – Tónlistin – Viðbrögðin

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 30. september 2018 14:00

Kim Larsen á sviði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV skýrði frá í morgun lést danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen í morgun, 72 ára að aldri. Hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli síðastliðinn vetur. Hann lét það ekki stöðva sig og fór í tónleikaferðalag um Danmörku í sumar en varð að aflýsa tónleikum í Noregi af heilsufarsástæðum. Hann kom síðast fram á tónleikum 26. ágúst ásamt hljómsveit sinni Kjukken. En hver var Kim Larsen? Hér verður stiklað á stóru um þennan vinsæla tónlistarmann, ferilinn, tónlistina og viðbrögð Dana við andláti hans.

Danskir fjölmiðlar fjalla að vonum mikið um andlát Larsen í dag enda maðurinn þjóðargersemi eins og margir fjölmiðlar segja. Hann fæddist í Kaupmannahöfn þann 23. október 1945 og var skírður Kim Melius Flyvholm Larsen. Hann var menntaður grunnskólakennari en sinnti því starfi lítið. Hann bjó í Óðinsvéum frá 1995. Þar sást oft til hans á reiðhjóli sínu og í heimsóknum á öldurhúsum. Hann var lítið fyrir athyglina og kaus rólegt líf utan tónlistarsviðsins og harðneitaði að ræða einkalíf sitt. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.

Larsen kom fram á sjónarsviðið í byrjun áttunda áratugarins með hljómsveitinni Gasolin, sem naut mikilla vinsælda í Danmörku, þegar hún sendi frá sér plötuna Gasolin. Frá þeim tíma hefur hann óumdeilanlega verið einn vinsælasti og þekktasti tónlistarmaður Danmerkur. Lög eins og Rabalderstræde og Hva´ gør vi nu lille du komu Gasolin á kortið sem einni vinsælustu hljómsveit Dana. Hljómsveitin leystist upp 1978 eftir að hafa gefið út átta danskar hljómplötur og fjórar á ensku. Þá hófst sólóferill Larsen en það var síst til að draga úr vinsældum hans eða skemma feril hans. Undanfarin ár spilaði hann mest með hljómsveitinni Kjukken. Á ferlinum seldi hann rúmlega fimm milljónir hljómplatna og geisladiska.

Óhætt er að segja að Larsen sé einn vinsælasti listamaður Danmerkur fyrr og síðar. Hann vildi þó sjálfur ekki kalla sig listamann, sagðist vera tónlistarmaður sem ferðaðist um og spilaði fyrir fólk.

Þekktasta plata hans er líklega Midt om natten. Samnefnd kvikmynd var framleidd 1984 og lék Larsen aðalhlutverkið. Myndin fékk Robert verðlaunin 1985 fyrir bestu kvikmyndatónlistina. Fyrsta sóloplata hans var Værsgo en auk hennar gaf hann út sex sólóplötur til viðbótar. Larsen var þekktur fyrir góða textagerð, grípandi texta sem oft voru hörð ádeila á samfélagið, stjórnmálin og ástandið hverju sinni. Þegar hann opnaði munninn, hlustaði fólk. Textar hans voru beinskeyttir og fólk hlustaði þegar hann kom fram í sjónvarpsviðtölum. Grunnskólakennari sem reykt, bölvaði og drakk bjór í sjónvarpinu.

Óhætt er að segja að tónlist hans hafi sameinað kynslóðir enda eru vinsældir hans miklar og það hefur mátt greina á viðbrögðum Dana eftir að fréttist af andláti hans í morgun. Segja má að nánast allar kynslóðir þekki lög á borð við Tarzan Mama Mia, De smukke unge mennesker, Midt om natten og mörg önnur.

Mette Bock, menningarmálaráðherra, sagði í morgun að tónlist Larsen muni áfram lifa með þjóðinni og það sé hún þakklát fyrir.

Mai Marcado, félagsmálaráðherra, lofsamaði Larsen einnig og þakkaði honum fyrir frábæra tónlist.

Margir hafa tekið í sama streng á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum í morgun.

Það er kannski við hæfi að ljúka þessari umfjöllun á textabroti eftir Larsen úr laginu Om Lidt (bliver her stille/er vi borte en það á vel við um brotthvarf þessar dönsku þjóðargersemar.

Om lidt bli’r her stille
Om lidt er det forbi
Fik du set det du ville
Fik du hørt din melodi
Om lidt, om lidt
Er vi borte
Vi ses måske igen

Þá minnast fjölmargir Íslendingar Larsen með hlý hug, þar á meðal Bubbi Morthens og Björgvin Halldórsson:

Grímur Atlason tónleikahaldari minnist Larsen einnig:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hans var saknað í 26 ár: Fannst á lífi 200 metrum frá heimili sínu

Hans var saknað í 26 ár: Fannst á lífi 200 metrum frá heimili sínu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta
Pressan
Fyrir 6 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því