Aftonbladet skýrir frá þessu í dag. Jakobsson er talsmaður flokksins í menntamálum og hefur verið talinn líklegur framtíðarleiðtogi flokksins. Hann hefur áður gagnrýnt „fjárhagslega léttúð“ stjórnmálamanna. En nú situr hann sjálfur í súpunni og spurningin er hvernig honum mun reiða af eftir þessa umfjöllun Aftonbladet. Í samtali við blaðið sagðist hann hafa gert mistök.
Aftonbladet hefur undanfarið beint sjónum sínum að þingmönnum og ýmsum útgjöldum sem þeir hafa látið þingið standa undir. Að minnsta kosti tveir þingmenn hafa hætt afskiptum af stjórnmálum í kjölfarið.
Það er þó rétt að hafa í huga að Jakobsson lét þingið ekki aðeins greiða fyrir einkaerindi sín því hluti leigubílaferðanna var farinn í samræmi við reglur þingsins. En ljóst er að hann lét þingið greiða fyrir margar ferðir sem það átti ekki að greiða fyrir, einkaerindi hans. Þar á meðal ferð frá heimili hans til að horfa á íshokkí ekki fjarri heimilinu. Eftir leikinn tók hann leigubíla til margra staða í Stokkhólmi fram eftir nóttu. Hann sagði í samtali við Aftonbladet að hann hafi meðal annars farið í einkasamkvæmi.
Aftonbladet bendir á að ekki sé nóg með að Jakobsson hafi látið greiða háar fjárhæðir fyrir leigubíla heldur sé hann einnig með lestarkort á kostnað þingsins en það kostar 83.000 sænskar krónur á ári. Hann hefur þó greinilega ekki notað lestir mikið því rúmlega 100 sinnum hefur hann tekið leigubíl milli heimilis síns og þingsins. Kostnaðurinn við þessar ferðir er 130.000 sænskar krónur.
Samkvæmt reglum þingsins mega þingmenn taka leigubíla á kostnað þess þegar engar almenningssamgöngur eru í boði.