Malarhorn er gistiheimili á Drangsnesi sem opið er allt árið í kring en yfir sumartímann, frá 15. maí og út september, er á sama stað opinn veitingastaðurinn Malarkaffi. Á staðnum er enn fremur boðið upp á siglingar út í Grímsey tvisvar á dag, kl. 9 á morgnana og 13.30, og eru farmiðar í siglinguna keyptir í Malarhorni. Fuglalíf í Grímsey er fjölskrúðugt og með siglingunni fylgir leiðsögn og fræðsla um fuglalífið. Í Grímsey er ein af stærstu lundabyggðum í heimi. Siglingarnar eru í boði frá 15. júní til 15. ágúst þegar fuglalífið er í sem mestum blóma.
„Frá maí og út september er háannatími hérna en við höfum opið allt árið. Það er vissulega fremur rólegt hérna á veturna. Malarhorn er kjörinn áningarstaður fyrir þá sem keyra Strandirnar,“ segir Þóra Margrét Ólafsdóttir hjá Malarhorni.
Fjölbreyttir gistimöguleikar
Malarhorn er með gistirými fyrir um 50 manns í rúmlega 20 herbergjum. Sum herbergin eru með sameiginlegri baðaðstöðu, önnur eru fjölskylduherbergi með sérbaðherbergi, herbergi með sólskála eru einnig í boði og svo íbúðir.
Meirihluti þeirra sem gista er erlendir ferðamenn en staðurinn hentar vel fyrir Íslendinga á leið um þessar slóðir. Oftast er hægt að fá gistingu með fremur litlum fyrirvara og er þá best að hringja í síma 547-1010, kanna hvað er í boði og panta gistingu.
Ferskur fiskur og lamb
Veitingastaðurinn er opinn alla daga vikunnar frá 12 á hádegi og fram til um kl. 20.30 en lokunartíminn á kvöldin er fremur sveigjanlegur ef nóg er að gera. „Við bjóðum upp á ferskan fisk úr sjónum hérna í kring, steinbít, pönnusteiktan þorsk og plokkfisk, sem er mjög vinsæll. Síðan bjóðum við meðal annars upp á hægeldað lambalæri,“ segir Þóra. Einnig er vinsælt að fá sér kaffi og kökur á staðnum um eftirmiðdaginn.
Drangsnesið er töfrandi staður, Malarkaffi er kjörinn áningarstaður fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar í nágrenninu og Malahorn er prýðilegur gistikostur fyrir þá sem vilja dveljast lengur á staðnum. „Hérna af pallinum er útsýni yfir sjóinn og út í Grímsey. Síðan eru heitir pottar hérna úti við sjóinn sem kostar ekkert í og sundlaugin er hérna við hliðina,“ segir Þóra.
Sjá nánar á vefsíðunni malarhorn.is