fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Eyjan

Benedikt byggingarstjóri er ómyrkur í máli: Byggingarhraði of mikill og fúsk viðgengst – lagabreyting nauðsynleg

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 28. maí 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil vekja fólk til vitundar um fúsk í byggingariðnaði og að fólk vari sig á fúskurum, vanefndarmönnum sem tröllríða stéttinni, því miður. Leiðin til að átta sig á því hvort viðkomandi byggingaraðila sé treystandi er að fólk fái kennitölu hans, fletti henni upp á vefsvæði Mannvirkjastofnunar og athugi hvort hann er með gæðakerfi eða ekki. Ef aðilinn er með gæðakerfi vill hann örugglega passa upp á sitt og vanda til verka. Ef hann er ekki með gæðakerfi getur hann gert hvað sem er við bygginguna, oft með skelfilegum afleiðingum en án þess að það sé rekjanlegt og hafi eftirmála,“

segir Benedikt Sveinsson byggingarstjóri.

Heimsmet í myglu

Benedikt, sem er byggingameistari að mennt, rekur fyrirtækið Mánabyggð og tekur að sér byggingastjórnun og verkstýringu á byggingum í samstarfi við arkitekta, verkfræðinga, brunahönnuði og fleiri fagaðila. Telur hann að mikil óheillaþróun hafi orðið í nýbyggingum það sem af er þessari öld þar sem byggingahraði sé of mikill og víða viðgangist fúsk með ófyrirsjáanlegum og oft skelfilegum afleiðingum:

„Við erum að setja heimsmet í myglu og hún á sér aðallega stað í nýbyggingum. Mestu lekamálin í dag eru í nýbyggingum en ekki í eldra húsnæði. Lekamál koma helst upp í eldra húsnæði þar sem einhverjir hafa verið að breyta húsnæði en ekki gert það á réttan hátt,“

segir Benedikt, en hann telur að þöggun hafi verið í gangi um fúsk í byggingariðnaði og nú sé orðið brýnt að afhjúpa raunveruleikann í þessum efnum og grípa til aðgerða:

„Það er þöggun vegna þess að svo margir hafa hagsmuna að gæta. En þrátt fyrir það er umræðan í kringum mig orðin hávær og ég er búinn að skrifa Mannvirkjastofnun erindi og benda þeim á að þeir hafi upplýsingaskyldu og ættu að vara almenning við því að ráða aðila til verks sem ekki hafa tilskilin réttindi og þekkingu.“

Fjársvelti kemur í veg fyrir fullnægjandi eftirlit

Benedikt hefur stýrt endurbótum og viðgerðum hjá nokkrum húsfélögum undanfarið þar sem vanefndir hafa verið og vitlaust staðið að verki svo valdið hefur miklum skaða.

„Ég vil taka það fram að Mannvirkjastofnun sinnir góðu hlutverki. Hún var sett á laggirnar árið 2010 til að mæta þessu rugli sem var orðið í byggingariðnaði. Byggingarfulltrúi  og skipulagsfulltrúi eru fínar stofnanir og ég þekki þar margt gott fólk. Það sem er hins vegar að í stjórnsýslunni er mannekla og fjárskortur. Þetta er það sama og er að gerast í heilbrigðiskerfinu, það er verið að svelta þessar stéttir og það hefur afleiðingar fyrir samfélagið,“

segir Benedikt.

„Það eru vissulega líka til góðir verktakar í byggingariðnaði og þeir átta sig á að það þýðir ekki að loka steypu af með öðrum byggingarefnum áður en hún hefur þornað. Það er verið að loka steyptum byggingarhlutum allt of hratt með öðrum efnum, t.d. parketi, timburþakvirki og klæðningum, og einangra löngu áður en það er hægt, en efnin verða að fá andrúm til að taka sig. Þetta er það sem er að. Gamalt húsnæði hér á landi andar miklu betur og loftar miklu betur en nokkurn tíma nýtt húsnæði. Forsenda í byggingu, sama hve mikið og hvernig byggingarefni er notað, er að það lofti um efnið. Þetta er óheillaþróun sem hófst upp úr aldamótum þegar fjármálakerfið varð allt frjálst. Allt snýst þetta um bankavexti, þeir stýra öllum framkvæmdum, takmarka og setja skrúfuna á allt saman.“

Lagabreytingar þurfa að eiga sér stað

Benedikt er ómyrkur í máli en það vakir ekki fyrir honum að koma höggi á einstaka aðila heldur vekja samfélagið til vitundar um að við erum á rangri leið í byggingaþróun:

„Mér er mikið í mun að samfélagið þrífist á heilbrigðan hátt og fólki líði vel í húsunum sínum en þurfi ekki að byrja á viðhaldi um leið og það flytur inn í nýlegt eða nýtt húsnæði. Þetta er skelfilegt! Í flestum tilfellum er fólk að leggja aleigu sína í húsnæði.“

Benedikt vill sjá lagabreytingar og nýja eftirlitsstofnun. „Þetta getur ekki gengið mikið lengur svona. Það sem vantar inn í þetta umhverfi er opinber eftirlitsstofnun sem gerir ástandsmat á byggingum, nýjum sem gömlum, og það ætti ekki að vera hægt að selja þær fyrr en þær uppfylla skilyrði um öryggi og hollustuhætti. Það myndi hægja mjög á þessari lélegu framkvæmd sem víða á sér stað ef þetta yrði sett í lög.“

Benedikt Sveinsson hefur innleitt gæðastjórnunarkerfi byggingarstjóra skv. lagagrein um mannvirki nr. 160/2010 þar sem gerð er krafa um að iðnmeistarar og byggingarstjórar skuli innleiða slíkt gæðakerfi og gerir Mannvirkjastofnun úttekt á kerfinu með virkniskoðun. Innleiðing gæðakerfis viðeigandi iðnmeistara er m.a. skilyrði fyrir því að byggingaleyfi vegna framkvæmda fáist útgefið. Mannvirkjastofnun hefur á grundvelli virkniskoðunar lokið skráningu gæðastjórnunarkerfis Benedikts í gagnasafn stofnunarinnar á grundvelli laganna.

Upplýsingar um skráða aðila gæðastjórnunarkerfisins er að finna á heimasíðu Mannvirkjastofnunar, http://www.mannvirkjastofnun.is/ á listum yfir löggilta hönnuði, löggilta iðnmeistara og aðila með starfsleyfi byggingarstjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan