fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Guðlaugur Þór: Bretar vilja tryggja réttindi íslenskra borgara í Brexit

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 17:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Samkvæmt Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, er það vilji breskra yfirvalda að virða og tryggja réttindi íslendinga, svo þeir sitji við sama borð og aðrir. Brexit sé forgangsmál.

„Brexit er og verður forgangsmál hjá okkur í utanríkisráðuneytinu og mikil vinna fer nú fram í ráðuneytum hér á landi við að vernda hagsmuni okkar vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Sem fyrr höfum við orðið vör við mikinn og jákvæðan vilja breskra stjórnvalda að tryggja að réttindi íslenskra borgara séu virt og að þeir sitji við sama borð og aðrir. Stjórnsýslan vinnur hörðum höndum að því að gæta hagsmuna Íslands til skemmri tíma í útgönguferlinu en ekki síður þegar litið er til framtíðarinnar,“

segir Guðlaugur Þór.

Embættismenn frá EFTA-ríkjunum innan EES (Íslandi, Liechtenstein og Noregi) funduðu með embættismönnum frá Bretlandi fyrr í vikunni í þeim tilgangi að ræða samkomulagið sem náðist á milli Bretlands og Evrópusambandsins (ESB) í desember 2017 varðandi réttindi borgara til áframhaldandi búsetu eftir útgöngu Bretlands úr ESB (Brexit). Á fundinum áttu sér stað jákvæðar umræður um málefni á borð við búseturétt, réttinn til almannatrygginga og gagnkvæma viðurkenningu á starfsréttindum. Lýstu aðilar yfir vilja sínum til þess að tryggja stöðu og réttindi breskra ríkisborgara sem búa á Íslandi, í Noregi og Liechtenstein, sem og réttindi ríkisborgara EFTA-ríkjanna þriggja innan EES sem búsettir eru í Bretlandi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins