fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 8. júní 2026 20:30

Frá æfingu sérsveitarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands vestra af ákæru fyrir ölvun við akstur. Var hann sakaður um að hafa ekið af stað af balli undir áhrifum áfengis. Komu sérsveitarmenn að bíl mannsins utan vegar og sást hann stíga út um ökumannssætið en hann fullyrti allan tímann að annar maður hefði keyrt bílinn og stungið af þegar hann lenti utan vegar. Hann vissi hins vegar ekki nein deili á umræddum manni og ekki hefur verið upplýst hver þessi meinti ökumaður er.

Undir lok september á síðasta ári kölluðu sérsveitarmenn til almenna lögreglu eftir að hafa ekið fram á bíl mannsins utan vegar. Töldu sérsveitarmennirnir að um ölvun við akstur væri að ræða og sögðust þeir hafa séð manninn stíga út um ökumannsdyrnar. Sögðu þeir hann hafa verið þvoglumæltur og að áfengislykt hefði verið af honum.

Hvar nákvæmlega bílnum var ekið út af hefur verið afmáð úr dómnum. Loftpúðar ökumanns- og farþegameginn höfðu sprungið út og töluvert tjón var á bílnum. Þegar almennir lögreglumenn komu á vettvang tóku þeir við málinu.

Félagi

Á vettvangi neitaði maðurinn því að hafa ekið bílnum og sagði félaga sinn hafa gert það. Hann vissi þó ekki hvað þessi félagi hét. Hann sagði ökumanninn hafa stungið af eftir að hafa ekið út af og vildi síðan ekki veita frekari upplýsingar um hann. Stóð hann fastur á því að hafa setið í farþegasætinu.

Við áfengismælingu reyndist maðurinn ölvaður og í blóðsýni mældist vínandamagnið um þrefalt meira en leyfilegt hámarksmagn í akstri. Á lögreglustöð ítrekaði maðurinn að annar maður hefði keyrt bílinn en hann sagðist ekki vita hvað viðkomandi héti.

Maðurinn lagði fram vottorð frá kírópraktor sem hann sagðist hafa verið hjá vegna stoðkerfisvanda síðan 2023. Samkvæmt vottorði kírópraktorsins, sem er kona, kom maðurinn til hennar um miðjan október, en útafaksturinn var í lok september. Í vottorðinu kom meðal annars fram að maðurinn hafi verið með sjáanlega bólgu, eymsli og verk við snertingu yfir brjóstið, frá hægri öxl niður á vinstra brjóst, eftir bílbelti.

Hver?

Fyrir dómi sagðist maðurinn hafa verið á balli en upp hafi komið ósætti á milli hans og konu hans og hann þá ákveðið að fara. Hann hefði rekist á hóp af strákum og gefið sig á tal við þá. Einn þeirra hafi samþykkt að keyra hann en ekki kemur fram í opinberri útgáfu dómsins hvort leiðinni hafi verið heitið heim til mannsins.

Sagðist maðurinn hafa sofnað í farþegasætinu en þegar hann hafi rankað við sér hafi bíllinn verið lentur utan vegar og loftpúðarnir sprungnir út. Ökumaðurinn hafi hvergi verið sjáanlegur.

Sagðist maðurinn ekki muna nafn ökumannsins. Hann hefði ekki heyrt í honum eftir slysið en taldi hann búa á Norðurlandi. Aðspurður um hvers vegna hann steig út úr bílnun ökumannsmeginn sagði hann að sú hurð hafi verið opin.

Alemnnir lögreglumenn sem komu á vettvang báru fyrir dómi að sérsveitarmennirnir sem komu fyrstir á vettvang hafi ekki orðið varir við neina aðra manneskju í grenndinni. Sögðu lögreglumennirnir engin merki um að einhver annar til viðbótar við manninn hafi verið í bílnum. Sögðust þeir einnig ekki hafa orðið varir við neinn annan mann á svæðinu þegar þeir voru á leið á vettvang.

Áverkar

Kírópraktorinn kom fyrir dóm og staðfesti það sem fram kom í vottorðinu. Hún lýsti áverkum mannsins á þann hátt að hann hefði verið tognaður aftanvert í vinstri öxl og öll hreyfing þar verið sár. Jafnframt hafi hann verið með áverka framanvert á hægri öxl. Hún sagði áverka mannsins hafa verið samrýmanlega því að hann hefði verið farþegi í farþegasæti bifreiðarinnar, því þá grípi öryggisbelti hægri öxl en ekki þá vinstri. Því væri aftur á móti öfugt farið þegar setið væri í bílstjórasæti bifreiðar og áverkar mannsins fengju ekki samrýmst því að hann hefði verið ökumaður.

Fyrir dómi sagði ákæruvaldið að sú staðreynd að lögreglumenn hafi séð manninn stíga út um ökumannsdyr bifreiðarinnar vera sönnun þess að hann hefði ekið bifreiðinni og fullyrðingar um að einhver annnar hefði gert það væru staðlausir stafir.

Taldi ákværuvaldið sönnunargildi vottorð kírópraktorsins takmarkað þar sem það hefði verið gert nærri þremur vikum eftir atvikið. Það væri enn fremur þekkt að jafnvel læknar geti átt erfitt með að slá því föstu stuttu eftir slys hvort áverkar, þar með talið. marblettir eftir bílbelti, séu til komnir vegna stöðu ökumanns eða farþega. Þótt líknarbelgur farþegameginn hefði sprungið út væri það heldur ekki sönnun þess að nokkur maður hefði setið þeim meginn. Maðurinn vildi hins vegar meina að loftpúðakerfið í bifreið þessarar tegundar væri með skynjara sem skynjaði hvort einhver sæti í farþegasætinu og það hefði því annars ekki sprungið út við útafaksturinn ef enginn hefði setið þar. 

Bætti maðurinn því einnig við að þótt ökumaðurinn hefði ekki gefið sig fram þá ætti það ekki að bitna á honum. Það væri ekki hans skylda að finna viðkomandi og það að hann myndi ekki nafn ökumannsins væri skiljanlegt í ljósi þess að hann hefði verið ölvaður.

Sýkn

Í niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands vestra segir að það styðji þá ályktun að maðurinn hafi ekið bifreiðinni að lögreglumenn hafi séð hann stíga út úr henni ökumannsmeginn og að enginn annar maður hafi sést á vettvangi.

Á hinn bóginn liggi fyrir vottorð kírópraktorsins um að áverkanir á manninum bendi til að hann hafi verið í farþegasætinu þegar bifreiðinni var ekið út af en ekki í ökumannssætinu.

Þar sem engin vitni hafi séð manninn beinlínis aka bifreiðinni sé það ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hafi gert það. Sá tími sem liðið hafi frá atvikinu og þar til kírópraktorinn skoðaði manninn skipti ekki höfuðmáli.

Maðurinn var því sýknaður af ákæru um ölvunarakstur.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu