

Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað kröfum gegn flugfélaginu Scandinavian Airlines System (SAS) frá í tveimur aðskildum málum. Bæði málin voru höfðuð af HF15 ehf. sem er félagið sem rekur vefsíðuna flugbaetur.is.
Fyrra málið varðaði flug sem íslenskur karlmaður átti bókað með flugfélaginu frá Kistiansund til Osló. Manninum var neitað um far vegna yfirbókunar þó að hann hefði mætt til innritunar á tilsettum tíma með staðfesta bókun og fullgild ferðaskírteini. Gerði maðurinn kröfu um staðlaðar skaðabætur og framseldi kröfuna til HF15 ehf.
HF15 sendi bréf til flugfélagsins í september á síðasta ári og gerði kröfu um 7.394 evrur, eða rétt rúma milljón. Af þessari fjárhæð voru 400 evrur í staðlaðar skaðabætur, 17 evrur í vexti og 6.972 evrur í málskostnað. Kröfunni var hafnað en flugfélagið sagðist þó tilbúið að sætta málið þannig að greiddar yrðu 400 evrur með vöxtum til mannsins og 70 þúsund krónur í málskostnað. Við þetta vildi HF15 ekki una og höfðaði mál eftir árangurslausar samningsviðræður.
Flugfélagið bar því við að því yrði ekki stefnt fyrir dóm á Íslandi í málum sem varða staðlaðar skaðabætur á grundvelli reglugerðar Evrópusambandsins. Varnarþing vegna slíkra mála geti aðeins verið á brottfarar- eða komustað þess flugs sem krafan byggist á. Dómari tók undir þetta og benti á að flugfélagið væri hvorki með lögheimili, aðalskrifstofu né útibú á Íslandi og ferðin sem um ræðir var á milli staða í Noregi. Var málinu því vísað frá.
Seinna málið varðaði flug sem íslenskur karlmaður átti bókað með flugfélaginu frá Stavanger til Kaupmannahafnar. Því flugi var aflýst en maðurinn vildi meina að ekki hefði verið tilkynnt um aflýsinguna með fullnægjandi fyrirvara. Fjárhæðir voru þær sömu og í fyrra málinu og eins og því fyrra var þessu máli vísað frá með vísan til þess að ekki væri hægt að höfða mál hér á landi gegn félagi sem ekki hefur útibú á Íslandi og vegna flugs sem varðaði ekki Ísland með nokkrum hætti.
Fram kemur í báðum málum að í heildina hafi HF15 ehf. krafið flugfélagið um bætur og málskostnað vegna sex farþega. Heildarkrafan var því 44.363 evrur eða um 6,5 milljónir og af þeim var málskostnaður 41.832 evrur eða um 6,16 milljónir. HF15 er í eigu lögmannsins Ómars R. Valdimarssonar sem einnig flutti bæði málin fyrir hönd félags síns. Fyrir þremur árum höfðaði Ómar mál fyrir hönd fimm skjólstæðinga á hendur finnska flugfélaginu Finnair vegna rúmlega fjögurra klukkustunda seinkunar á flugi frá Svíþjóð til Taílands í desember árið 2021. Finnair krafðist þá að Ómar þyrfti persónulega að greiða málarekstur í málinu enda væri málareksturinn með öllu tilhæfulaus. Fór svo að krafa flugfélagsins var ekki tekin til skoðunar þar sem dómari, líkt og nú, vísaði málinu frá.
Sjá einnig:Finnair fór fram á að Ómar Valdimars þyrfti sjálfur að greiða málskostnað fyrir tilhæfulausa málsókn
Fyrir tveimur árum var Ómar sakaður um að hafa blekkt neytendur með villandi og rangri upplýsingagjöf á vefsíðunni flugbaetur.is með því að áskilja sér rétt til að tilkynna ekki neytendum þjónustunnar um málshöfðun áður en mál er höfðað en þegar Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu hafði nokkuð verið fjallað um íslenskt par sem kom af fjöllum þegar það komst að því að Ómar hafði stefnt ítölsku flugfélagi án þess að bera það undir það. Þegar málið tapaðist sat parið uppi með málskostnað, en Vísir fjallað ítarlega um málið á sínum tíma.