fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

FOX með lang flottasta teymið í kringum HM í sumar – Henry, Zlatan og fleiri góðir

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska sjónvarpsstöðin FOX Sports hefur kynnt glæsilegt teymi sérfræðinga og þáttastjórnenda fyrir Heimsmeistaramótið sem fram fer í Norður-Ameríku í sumar.

FOX fer með útsendingarréttinn að mótinu og hefur fengið nokkur af stærstu nöfnum knattspyrnuheimsins til liðs við sig fyrir umfjöllunina.

Fremstir í flokki eru fyrrum Barcelona-leikmennirnir Thierry Henry, Zlatan Ibrahimovic og Thiago Alcántara, sem munu sjá um greiningar og umræður í kringum leikina.

Peter Schmeichel, markvarðargoðsögn Manchester United, verður einnig meðal sérfræðinga ásamt Javier Hernandez, fyrrverandi framherja United og mexíkóska landsliðsins.

Clarence Seedorf, einn sigursælasti miðjumaður síðari ára, er einnig hluti af teyminu eftir að hafa vakið athygli fyrir framgöngu sína í Meistaradeildarumfjöllun Amazon Prime.

John Obi Mikel, fyrrverandi leikmaður Chelsea og nígeríska landsliðsins, verður sömuleiðis á skjánum ásamt bandarísku knattspyrnugoðsögnunum Clint Dempsey, Landon Donovan, Carli Lloyd og Alexi Lalas.

Juan Pablo Ángel, fyrrum framherji Aston Villa og kólumbíska landsliðsins, mun einnig leggja sitt af mörkum.

Rob Stone og Rebecca Lowe verða aðalþáttastjórnendur en Jules Breach og Pien Meulensteen munu einnig stýra þáttum á meðan Heimsmeistaramótið stendur yfir.

Sérfræðingar Fox:
Alexi Lalas
Thierry Henry
Zlatan Ibrahimovic
Carli Lloyd
Clarence Seedorf
Landon Donovan
Clint Dempsey
Javier Hernandez
Peter Schmeichel
Juan Pablo Angel
John Obi Mikel
Thiago Alcantara

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið
433Sport
Í gær

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“
433Sport
Í gær

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Í gær

Juventus setur Mateta aftur á lista sinn

Juventus setur Mateta aftur á lista sinn
433Sport
Í gær

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick
433Sport
Í gær

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku
433Sport
Í gær

Guardiola hótaði því 100 sinnum að segja upp hjá City

Guardiola hótaði því 100 sinnum að segja upp hjá City
433Sport
Í gær

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár