fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Þessi auglýsing er að slá í gegn: „Ég myndi aldrei segja þetta“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 30. mars 2016 13:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hver nennir að horfa á kellingar leika sér með bolta? Það er bara vandræðalegt,“ er meðal þess sem leikmenn í Dominos-deild karla í körfubolta voru látnir segja í í nýrri auglýsingu sem vakið hefur mikla athygli á Facebook í dag.

Forsaga málsins er sú að nokkrum leikmönnum úr Dominos-deild karla var stefnt saman og þeir beðnir um að lesa upp texta fyrir nýja auglýsingu sem átti að fara í loftið von bráðar. Töldu þeir að þeir væru að lesa inn á auglýsingu fyrir úrslitakeppni Dominos-deildarinnar og er óhætt að segja að þeir hafi verið furðu lostnir þegar textinn sem þeir áttu að lesa birtist.

„Ef þú vilt sjá körfubolta með pung, þá skaltu fylgjast með úrslitakeppni karla,“ var Helgi Már Magnússon, leikmaður KR, látinn segja. Það sem leikmennirnir vissu ekki var að auglýsingin var hluti af átaki KKÍ, Dominos og UN Women fyrir HeForShe.

HeForShe miðar að því að hvetja karlmenn og stráka til vitundar um hvernig þeir geta lagt baráttunni lið í nærumhverfi sínu. Samkvæmt rannsókn á vegum UN Women verður kynjajafnrétti náð í heiminum árið 2095 ef við höldum áfram á sömu braut á sama hraða. Með stráka og karlmenn um borð er talið að kynjajafnrétti verði náð helmingi hraðar.

„Í dag eru 10.943 karlmenn hér á landi skráðir sem HeForShe og í samstarfi við Domino’s deildina ætlum við að hækka þessa tölu upp í 16.000,“ segir á Facebook-síðu átaksins.

Auglýsinguna má sjá hér að neðan.

Kynjajafnrétti er keppnis

#HeForShe miðar að því hvetja karlmenn og stráka til vitundar um hvernig þeir geta lagt baráttunni lið í nærumhverfi sínu. Samkvæmt rannsókn á vegum UN Women verður kynjajafnrétti náð í heiminum árið 2095 ef við höldum áfram á sömu braut á sama hraða. Með stráka og karlmenn um borð er talið að kynjajafnrétti verði náð helmingi hraðar. Í dag eru 10.943 karlmenn hér á landi skráðir sem HeForShe og í samstarfi við Domino's deildina ætlum við að hækka þessa tölu upp í 16.000. Sýndu karakter og skráðu þig á www.heforshe.is strax í dag því kynjajafnrétti er keppnis!

Posted by UN Women – Íslensk Landsnefnd on Wednesday, 30 March 2016

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær 45 daga fyrir að ráðast á barnsmóður sína með stól og lemja hana í hnakkann

Fær 45 daga fyrir að ráðast á barnsmóður sína með stól og lemja hana í hnakkann