
Lögreglan vissi þá af meintu heimilisofbeldi þar sem unnusti Torbic, Kevin Motykie, kom við sögu. Handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur honum.
Lögreglan fann Torbick látna á heimilinu. Áverkar voru á líki hennar. Motykie var í bílskúrnum og var hann handtekinn að sögn People.
Torbick og Motykie bjuggu saman og voru par að sögn lögreglunnar.
Motykie hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og kynferðisbrot.
Bandarískir fjölmiðlar segja að Motykie sé grunaður um að hafa nauðgað Torbick, lamið hana og kyrkt.
Hann var með upptökutæki á sér þegar lögreglan handtók hann. Upptaka af síðustu sjö klukkustundum var í tækinu, þar á meðal af hljóðunum þegar Torbic var pyntuð.
Torbic heyrist öskra á Motykie að fara ofan af sér og að hann eigi ekki að setja handjárn á hana.
WGN segir að saksóknarar segi að síðustu fjórar mínúturnar í lífi Torbic heyrst á upptökunni, þar á meðal á meðan hún var kyrkt.