

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir allt stefna upp á við í hitanum þessa dagana. Til að mynda er að hitna hratt á Akureyri.
„Stefnir allt upp á við,“ segir Einar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. Hitinn í 1300 metra hæð yfir landinu gefi góða vísbendingu um hitagæð loftsins.
Maí hafi verið kaldur og bláir tónar áberandi í veðurkortum. Á þriðjudag, þann 19. maí, verðum við alfarið laus við bláa litinn.
„Á Akureyri er gert ráð fyrir +4°C á morgun,“ segir Einar og nefnir að á þriðjudag geti Akureyringar búist við 11 gráðum.
Á kortum megi sjá væn hlýindi suðaustur í hafi og við Skotland.
„Tengist því að seinnipartinn í næstu viku er spáð rísandi hæðarhrygg af hafi og inn yfir Bretlandseyjar og V-Evrópu,“ segir Einar. „Safnspárnar reikna síðan með því að um 40% líkur séu á því að einhver angi þessa hlýa loftt nái til okkar í framhaldinu, 24. til 26. með SA- eða S-átt. Um 20% líkur hins vegar á því að það kólni aftur með lofti af vestlægum uppruna.“