fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Gleymdi eiginkonu sinni sem lét alla vita – Skammaður af aðdáendum sínum

433
Mánudaginn 11. maí 2026 14:30

Callum og Bethany.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Callum Brittain, leikmaður Middlesbrough, var greinilega með hugann algjörlega við baráttuna um sæti í úrvalsdeildinni um helgina, svo mikið að hann gleymdi afmælisdegi eiginkonu sinnar.

Eiginkona hans, Bethany, greindi frá þessu á samfélagsmiðlum eftir markalaust jafntefli Middlesbrough gegn Southampton í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins.

„Ef einhverjir Boro-aðdáendur höfðu áhyggjur af einbeitingunni hans þá gleymdi hann afmælinu mínu í morgun,“ skrifaði hún létt í bragði á Instagram.

Brittain spilaði allan leikinn og hrósaði síðan stuðningsmönnum félagsins fyrir magnaða stemningu á Riverside-vellinum.

„Nú verðurðu að fara og kaupa afmæliskort fyrir konuna,“ svaraði hins vegar einn kíminn stuðningsmaður.

Middlesbrough bætti Bethany þetta upp með því að senda henni blóm, eins og sjá má hér ofar.

Seinni leikur liðanna fer fram á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku