

Myndir og umræða um mat sem er seldur á íþróttaleikvöngum verða sífellt vinsælli á samfélagsmiðlum. Matur sem var til sölu hjá D-deildarliðinu Bromley í ensku knattspyrnunni á dögunum skorar ekki hátt meðal netverja.
Sports Scran, vinsæll aðgangur á miðlinum X þegar kemur að þessum efnum, birti mynd af pylsu sem Bromley var með til sölu. Þar má greinilega sjá að mygla er á pylsunni og brauðinu sem henni fylgir.
„Þið getið hætt að spyrja hver versti matur á íþróttaleikvangi sem ég hef séð er,“ stóð í færslu Sports Scran. „Þetta er ekki gervigreindarmynd,“ var skrifað á aðganginn í athugasemdakerfinu.
Viðbrögð netverja standa ekki á sér, en mynd af pylsunni er hér að neðan.
Hotdog at Bromley FC…. people can stop asking what’s the worst scran I’ve seen
💷 £6 ⚽️ pic.twitter.com/Pcv82Qlgbd
— Sports Scran (@SportScran) May 10, 2026