fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
433Sport

Neitar að ræða framtíð Gordon – Bayern hefur hafið viðræður

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. maí 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle United, neitaði að tjá sig um fregnir þess efnis að Bayern Munich hafi hafið viðræður um kaup á Anthony Gordon.

Samkvæmt Sky Sports News hefur þýska stórliðið sýnt vængmanninum áhuga og haft samband, en Newcastle er sagt tilbúið að hlusta á tilboð þar sem Gordon gæti viljað skoða möguleika sína.

Howe vildi þó ekki fara nánar út í málið á blaðamannafundi. „Nei, ekkert. Þetta er ekki eitthvað sem ég kem að,“ sagði hann.

Hann var þó spurður hvort Gordon væri fullkomlega skuldbundinn félaginu, en Howe svaraði því játandi.

„Hann væri ekki í hópnum ef svo væri ekki. Ég met það út frá samskiptum mínum við leikmanninn og því sem ég sé á æfingum,“ sagði Howe.

Newcastle á þrjá leiki eftir á tímabilinu, þar sem liðið mætir Nottingham Forest, West Ham og Fulham.

Howe lagði áherslu á að einbeitingin væri á lokasprett tímabilsins en ekki óvissa sumarsins.

„Það þýðir ekkert að horfa of langt fram í tímann. Við viljum enda tímabilið á sterkum nótum,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vel yfir 100 manns handteknir eftir að óeirðir brutust út í gær

Vel yfir 100 manns handteknir eftir að óeirðir brutust út í gær
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City