

Brooklyn Beckham óskaði föður sínum David Beckham ekki til hamingju með 51 árs afmælið á samfélagsmiðlum um helgina. Vakti þetta mikla athygli erlendra götublaða.
David átti afmæli á laugardag og fékk kveðjur frá eiginkonu sinni, Victoriu, og öllum börnum nema Brooklyn.
„Til hamingju með afmælið. Við elskum þig svo mikið,“ skrifaði Victoria meðal annars. David sagðist svo hafa átt frábæran afmælisdag með sínu fólki.
Brooklyn tilheyrði þó ekki þeim hópi en hann á í opinberu stríði við foreldra sína. Hann sendi frá sér svakalega yfirlýsingu í byrjun árs, þar sem hann sakaði þau meðal annars um að reyna að grafa undan hjónabandi sínu og leikkonunnar Nicolu Peltz.
David og Victoria eru sögð bæði slegin og leið yfir stöðu mála innan fjölskyldunnar.