

Bandaríski leikarinn Scott Schwartz lék sem barn í vinsælum kvikmyndum á borð við A Christmas Story og The Toy. En þegar það byrjaði að halla undan fæti færði hann sig yfir í klámmyndir.
„Ég gerði þetta fyrir launaseðilinn. Ég var næst launahæsti karlklámmyndaleikari sögunnar,“ segir Schwartz í frétt The Daily Beast um málið.
Scott Schwartz er 57 ára gamall. Hann sló í gegn á unga aldri snemma á níunda áratug síðustu aldar í kvikmyndum á borð við A Christmas Story, The Toy og Kidco.
Þegar hann eltist tókst honum hins vegar ekki að færa sig yfir í hefðbundnar kvikmyndir líkt og til dæmis Kurt Russell og Drew Barrymore náðu að gera. Þess í stað fór hann að leika í lélegum hryllingsmyndum og þegar þau tækifæri þornuðu upp þá fór hann í klámið.
Vinur hans starfaði við klámmyndagerð og til að byrja með lék Schwartz í myndum án þess að stunda kynlíf sjálfur.
„Þeir borga 300 dollara á dag. Ég þarf pening fyrir húsaleigu. Þetta er allt í lagi, ég er ekki að meiða neinn. Ég er ekki á leið í fangelsi,“ hugsaði Schwartz með sér.
En síðan vatt hinn nýji ferill upp á sig. Skyndilega var hann orðinn myndatökumaður í klámi og að lokum orðinn alvöru klámmyndaleikari. Var hann um tíma næst launahæsti karlleikarinn í þeim bransa, á eftir John Wayne Bobbitt, sem lék í klámmyndum eftir að eiginkona hans Lorena skar af honum liminn.