fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 10:30

Þetta hefur ekki verið gott. Myndir/Instagram/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska hlaupakonan Eilish McCoglan hlaut slæm meiðsli á fæti í London maraþoninu sem fór fram á sunnudag. Var eins og fóturinn á henni hefði „sprungið.“

Greint er frá þessu í breska blaðinu The Sun.

McCoglan, sem er 35 ára gömul, kláraði maraþonið á tæplega 2 klukkutímum og 25 mínútum. Hafnaði hún í sjöunda sæti, efst Evrópumanna. Áhorfendur tóku hins vegar eftir því að hægri fótur hennar var blóðugur í gegnum skóinn.

Skórinn var alblóðugur. Mynd/Getty

McCoglan birti myndir af meiðslunum sem hún hlaut í hlaupinu á Instagram og það gerir afrek hennar enn þá áhrifameira.

Hafði ein táin bókstaflega rifnað þegar hlaupið var um það bil hálfnað og var eins og fótur hennar hefði „sprungið“. Húðin losnaði af og blóðrautt holdið var bert. Eins og gefur að skilja var sársaukinn gríðarlegur og þurfti hún að hlaupa svona í meira en klukkustund.

McCoglan verður einhvern tíma að jafna sig. Mynd/Instagram

Fyrir utan þessi meiðsli var McCoglan að berjast við meiðsli á fótlegg og rasskinn fyrir hlaupið. Alvöru nagli á ferð.

McCoglan segir að ekki sé vitað hvað hafi valdið þessum meiðslum á fætinum. Hún hafi hvorki verið í nýjum skóm né sokkum og þeir séu ekki of litlir.

„Það eina sem mér dettur í hug er að fæturnir gætu hafa verið bólgnir?“ segir hún í færslu. „En hvað með það, ég er stolt af árangri mínum í maraþoninu. Og takk fyrir fyrir að hvetja mig yfir línuna. Þetta var geggjað og í raun það sem kom mér alla leið.“

Hræðileg meiðsli. Mynd/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Í gær

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést