

Kveikur ræddi meðal annars við íslenska konu sem hefur reynslu af vændi. Hún var stödd erlendis í fjárhagserfiðleikum þegar hún kynntist manni sem ákvað að nýta sér neyð hennar. Þrátt fyrir að hafa samþykkt fyrst að selja vændi missti konan fljótlega alla stjórn á aðstæðum. Maðurinn sem gerði hana út heimtaði þriðjung launa hennar og stjórnaði henni alfarið. Hún lýsir því hvernig vændiskaupendur beittu hana hrottalegu ofbeldi.
Flestar konur sem selja vændi á Íslandi eru þó erlendar en kaupendurnir eru flestir íslenskir karlmenn. Þessir menn eru á öllum aldri, úr ólíkum stéttum og starfsgreinum.
„Maður hefur heyrt að menn séu að fara bara til og frá vinnu, keyra börn í leikskólann, eru að fara á erfiðan fund. Bara aðeins að droppa þarna við áður,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð. Flestar konur sem selja vændi gera það af neyð, svo sem vegna neyslu eða fjárhagsvanda. Bjarkarhlíð hefur tekið eftir því að vændi er farið að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi þar sem konur eru fluttar hingað til lands gagngert til að gera þær út í vændi. Til Bjarkarhlíðar leitaði nýlega kona sem hafði þjónustað áttatíu einstaklinga á þremur sólarhringum, en lögregla telur nær fullvíst að hún sé þolandi mansals og send landa á milli.
Að sögn lögreglu er vændisstarfsemi töluverð á Íslandi í dag. Þegar um skipulagða brotastarfsemi er að ræða fær konan oft ekki mikið meira en helminginn af því sem hún þénar. Fyrir ofan hana í píramídanum er aðili sem sér um auglýsingar og rafræn samskipti og svo annar milliliður sem sér um bókanir. Á toppnum situr svo höfuðpaurinn. Konurnar eru gjarnan að hitta menn sem þær hafa ekki valið sjálfar og án þess að vita hvernig þjónusta þeirra hefur verið auglýst og hverju kaupendur búast við frá þeim.
„Yfirleitt eru þetta karlar sem kaupa konur, þeir líta á konur sem hluti eða kjötstykki eða eitthvað til þess að þjóna sér. Þegar þú hefur þannig viðhorf að þá – svona afmennskunarviðhorf – að undir slíkum kringumstæðum er ofbeldi algengara,“ segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta.
Vændisstarfsemi fer meðal annars fram á hótelum á vegum Stay Apartments. Fréttamenn Kveiks vöktuðu eitt slíkt hótel í Einholti og fylgdust með tíðum mannaferðum í herbergi númer 214. Fleiri staðir eru nefndir í umfjölluninni þar sem fram kemur að sums staðar sé vændisstarfsemi það algeng að kalla mætti það vændishús. Eitt slíkt hús má finna í niðurníddu húsnæði í Túnunum. Nágrannar eru meðvitaðir um hvað fer þar fram og hafa reynt að fæla vændiskaupendur frá, svo sem með skjávarpa sem varpar varnarorðum á húsvegginn. Þar er vændiskaupendum bent á að slíkt sé ólöglegt og að vændiskaup verði tilkynnt til lögreglu.
0
Drífa og Jenný telja að það sé of auðvelt að kaupa og selja vændi á Íslandi. Þessu mætti breyta svo sem með því að birta nöfn vændiskaupenda sem eru staðnir að verki. Einhverjar afleiðingar þurfi að vera af vændiskaupum.
Nánar má kynna sér málið í umfjöllun Kveiks hjá RÚV.