
Brotin beindust að konum og stúlkum af frumbyggjaættum, en hann er sagður hafa komið á fót eins konar sértrúarsöfnuði þar sem hann misnotaði stöðu sína sem „andlegur leiðtogi“.
Í frétt AP kemur fram að við dómsuppkvaðninguna hafi fórnarlömb og aðstandendur þeirra lýst afleiðingum brota hans. Ein þeirra, sem var aðeins 14 ára þegar Nathan braut gegn henni, sagði að hún hefði verið svipt æsku sinni.
Nathan neitaði staðfastlega sök í málinu og það gagnrýndi dómarinn, Jessica Peterson. Benti hún á að sönnunargögnin í málinu væru þess eðlis að ekki væri hægt að efast um þau.
Nathan talaði um „réttarmorð“ þegar dómur var kveðinn upp en hann getur fyrst sótt um reynslulausn eftir 37 ár, þegar hann verður 86 ára.
Saksóknarar héldu því fram að Nathan hefði um árabil notað orðspor sitt sem andlegur leiðtogi innan Lakota-frumbyggjasamfélagsins til að nálgast og stjórna fórnarlömbum sínum.
Samkvæmt framburði í réttarhöldunum sagði hann meðal annars einni stúlku að hún þyrfti að missa meydóminn til að bjarga lífi móður sinnar, sem þá var haldin krabbameini. Í kjölfarið beitti hann hana kynferðisofbeldi og sagði að móðir hennar myndi deyja ef hún segði frá.
Nathan vakti fyrst athygli sem ungur leikari þegar hann fór með hlutverk Smiles a Lot í kvikmyndinni Dances With Wolves (1990), sem Kevin Costner leikstýrði og lék í. Myndin naut mikillar velgengni og hlaut meðal annars Óskarsverðlaun.