fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Sjúkraþjálfari sakaður um stórtæk fjársvik – Gæti átt þungan fangelsisdóm yfir höfði

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 27. apríl 2026 15:00

Sjúkraþjálfarinn er sakaður um að hafa blekkt starfsfólk SÍ í 577 skipti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært sjúkraþjálfara fyrir fjársvik. Er hann sakaður um að hafa svikið nærri 4 milljónir króna út úr Sjúkratryggingum Íslands.

Sjúkraþjálfarinn er íslenskur karlmaður á fertugsaldri og starfar á höfuðborgarsvæðinu. Sakamál hefður verið höfðað gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjársvik.

Er sjúkraþjálfarinn sakaður um að hafa blekkt starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands í samtals 577 skipti til þess að samþykkja kröfur um greiðsluþátttöku stofnunarinnar. Heildarupphæðin nemur 3.799.472 krónum.

Tjáði hann Sjúkratryggingum að um væri að ræða kostnað sem stofnuninni bæri að greiða samkvæmt rammasamningi við sjúkraþjálfara sem hafa fengið samþykki til að starfa samkvæmt honum. Það er vegna meðferða sem hann veitti skjólstæðingum sínum á tímabilinu 22. mars til 26. september árið 2023.

Rukkaði fyrir meðferðir sem fóru ekki fram

Segir í ákæruskjalinu frá 9. apríl síðastliðnum að sjúkraþjálfarinn hafi gert þetta með því að rangfæra ýmsar upplýsingar á kröfunum sem vörðuðu gjaldaliði og/eða dagsetningar meðferðanna. En einnig hafi hann gert kröfur um greiðsluþátttöku í meðferðum sem fóru alls ekki fram. Hafi þessar blekkingar leitt til þess að Sjúkratryggingar Íslands hafi ofgreitt inn á bankareikning hans áðurnefnda peningaupphæð.

Allt að 6 ára fangelsi

Krefst héraðssaksóknari þess að sjúkraþjálfarinn verði dæmdur til refsingar fyrir þessi brot og greiðslu alls sakarkostnaðar sem hlýst af málinu.

Vísað er til 248. greinar almennra hegningarlaga. Þar segir:

„Ef maður kemur öðrum manni til að hafast eitthvað að eða láta eitthvað ógert með því á ólögmætan hátt að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd hans um einhver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“