fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 27. apríl 2026 13:30

Maðurinn fann fiskinn skammt frá Bónus í Ögurhvarfi. Skjáskot/Reddit/Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur maður varð vitni að því sem hann telur vera tilraun til eitrunar skammt frá Bónus í Ögurhvarfi. Sá hann grunsamlegan mann sleppa fiski á víðavangi, hugsanlega til að eitra fyrir dýrum. Málið var tilkynnt til lögreglu og sveitarfélags sem fjarlægði fiskinn.

„Í dag sá ég mann á hjóli sleppa einhverju úr poka upp á hól, staðsetningin og hegðunin hans var skrítin svo ég fór og skoðaði hvað það var,“ segir maðurinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. „Það var fiskur sem ég held að hafi verið eitraður.“

Áhyggjurnar eru ekki ástæðulausar. Undanfarin ár hafa komið upp nokkur mál þar sem eitrað hefur verið fyrir dýrum. Til að mynda með frostlegi. Hafa þessi mál valdið ugg hjá gæludýraeigendum.

Ekki eru nema tvær vikur síðan að hundur og köttur drápust í Kjós eftir að hafa étið eitraða pylsur. Þessi mál hafa verið til skoðunar hjá lögreglu og Matvælastofnun.

Bærinn brást við

Maðurinn sem fann fiskinn hafði samband við lögregluna og Kópavogsbæ. Hefur fiskurinn nú verið fjarlægður.

„Ég fékk ekki mikla hjálp frá lögreglu, ég gaf henni lýsingu á manninum sem var ekkert sérlega góð því ég sá ekki andlitið hans vel, lögregla sagðist ætla að senda einhvern til að fjarlægja fiskinn en eftir að hafa beðið í klukkutíma þá hringdi ég sjálfur í Kópavogsbæ og þeir höfðu ekkert heyrt (þa hefur lögreglan ekki tilkynnt þeim). Starfsmaður Kópavogsbæjar kom samt fljótlega og fjarlægði fiskinn,“ segir hann.

Fólk passi sig

Hefur færslan fengið mikil viðbrögð og margir eru uggandi. Meðal annars gæludýraeigendur sem greina frá því að hafa misst gæludýrin sín vegna eitrunar.

„Ég held það vegna þess að það er skrítið að henda fisk úr poka og hjóla í burtu. Í fjölskyldunni höfum við misst hund út af eitruðum fisk áður. Þó svo ef þessi fiskur hafi ekki verið eitraður þá bið ég samt fólk að passa sig afþví það er verið að skilja eftir eitraða fiska,“ segir einn.

„Ógeð þetta lið er sem stundar þetta,“ segir annar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“