
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur nú greint frá því að hann hafi sigrast á krabbameini í blöðruhálskirtli, en meinið mun hafa uppgötvast árið 2024. Netanyahu segist hafa haldið greiningunni leyndri af ótta við að Íranir myndu nota veikindi hans í áróðursskyni.
Forsætisráðherrann gekkst undir skurðaðgerð vegna stækkunar í blöðruhálskirtli árið 2024 en í kjölfarið greindist hann með lítið illkynja æxli. Sem betur fer hafi krabbameinið greinst snemma og án þess að það næði að dreifa sér eða valda meinvörpum. Meðferðin var því nokkuð auðveld og er hann laus við meinið í dag.
„Ég fór í nokkrar stuttar lyfjagjafir, las bók og hélt áfram að vinna. Æxlið hvarf með öllu.“
Nú hefur ráðuneyti hans birt niðurstöður úr árlegri læknisskoðun forsætisráðherrans, en birtingu hafði áður verið frestað vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
„Ég óskaði eftir tveggja mánaða fresti svo þessar upplýsingar kæmu ekki fram í hámarki átakanna og til að koma í veg fyrir að stjórnvöld í Íran dreifðu enn meira af fölskum áróðri gegn Ísrael.“
Læknar staðfesta að forsætisráðherrann sé nú við góða heilsu.