fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Viðskiptaráðherrann sagðist hafa selt 1.300 „gylltar“ vegabréfsáritanir á fáeinum dögum – Seldi í raun bara eina

Pressan
Föstudaginn 24. apríl 2026 12:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, Howard Lutnick, fullyrti í desember að bandarísk stjórnvöld hefðu selt svokallaðar gylltar vegabréfsáritanir (e. gold card visa) fyrir um 1,3 milljarða Bandaríkjadala, eða um 163 milljarða króna. Um er að ræða sérstaka vegabréfsáritun sem gerir fólki kleift að búa og starfa í Bandaríkjunum ótímabundið, gegn því að áritunin sé keypt dýrum dómi. Ein gyllt vegabréfsáritun kostar að minnsta kosti 135 milljónir króna, eða milljón Bandaríkjadala.

Fljótlega eftir að þessar gylltu áritanir voru kynntar til sögunnar með pomp og prakt tilkynnti Lutnick að búið væri að selja áritanir fyrir 1,3 milljarða dala. Lutnick hefur nú viðurkennt að aðeins sé búið að samþykkja eina gyllta vegabréfsáritun en þó séu hundruð á biðlista. Þær verði samþykktar eftir að hafa farið í viðeigandi ferli. Lutnick fullyrti í fyrra að sala á þessum áritunum yrði gríðarleg tekjulind fyrir ríkissjóð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer