fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Móðir hyggst binda enda á líf sitt í dag eftir dauða sonar síns – Fær aðstoð í Sviss

Pressan
Föstudaginn 24. apríl 2026 12:30

Sorgin vegna dauða Marcusar hefur reynst Wendy óbærileg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

56 ára bresk kona hefur ákveðið að binda enda á líf sitt með aðstoð læknastofu í Sviss, fjórum árum eftir skyndilegt andlát einkasonar síns.

Konan, Wendy Duffy frá West Midlands á Englandi, mun gangast undir meðferðina hjá Pegasos-klíníkinni í Sviss, en í umfjöllun Daily Mail, sem ræddi ítarlega við Wendy um þessa ákvörðun hennar í vikunni, er bent á að slík aðstoð sé ólögleg í Bretlandi.

Í viðtalinu sagði Duffy að hún sæi ekki lengur tilgang með lífinu eftir dauða sonar síns, Marcusar, árið 2022. Hann lést 23 ára að aldri eftir að hafa kafnað þegar matur festist í öndunarvegi hans.

Meðferðir ekki skilað árangri

Samkvæmt frásögn hennar hefur hún glímt við djúpa sorg síðan og gengist undir meðferðir árum saman án þess að ná bata. Eftir dauða hans reyndi hún að svipta sig lífi og var hún um tíma í lífshættu vegna sjálfsvígstilraunarinnar. Viðtalið var birt á miðvikudag og kom þá fram að dánaraðstoð væri fyrirhuguð í dag, föstudag.

Duffy sótti um aðstoð hjá Pegasos og fékk samþykki seint á síðasta ári. Hún hefur greitt um 10.000 pund, um 1,6 milljónir króna, fyrir þjónustuna og er hún búin að skrifa kveðjubréf til fjölskyldu og vina.

Fjölskylda hennar, þar á meðal fjórir bræður og tvær systur, er meðvituð um ákvörðunina.

„Ég mun hringja í þau þegar ég kem til Sviss,“ sagði hún. „Það verður erfitt símtal þar sem ég kveð og þakka þeim. En þau munu skilja. Þau vita.“

Ekki léttvæg ákvörðun

Duffy hefur jafnframt skipulagt útfararmál sín og óskað eftir því að ösku hennar verði dreift á sama stað og ösku sonar hennar.

Málið hefur vakið athygli í Bretlandi, ekki síst í ljósi umræðu um lögleiðingu dánaraðstoðar. Duffy hefur sjálf sagst vilja að slíkt úrræði væri í boði í heimalandi hennar svo hún þyrfti ekki að leita til Sviss.

Í viðtali Daily Mail kemur fram að það hafi ekki verið léttvæg ritstjórnarákvörðun að birta sögu Wendyar. Það hafi þó verið gert þar sem margir eru í sömu sporum og hún.

Umræðan um aðstoð við lífslok heldur áfram í Bretlandi í dag þegar málið verður tekið fyrir í lávarðadeildinni.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer