
Arkitektinn Rex Heuermann er raðmorðingi. Þetta telst staðreynd enda hefur Rex játað á sig átta morð. Játningin var þó ekki skilyrðislaus. Fram kemur í nýjasta þætti heimildaþáttaraðarinnar The Gilgo Beach Killer: House of secrets að raðmorðinginn krafðist þess að fá fyrst að játa brot sín fyrir fjölskyldu sinni og eins krafðist hann þess að fá að ræða við sálfræðing á vegum þáttaraðarinnar, Alison Winter.
Þessi aukaþáttur er nú kominn í loftið og er þar fylgst með fyrrverandi eiginkonu Rex, hinni íslensku Ásu Guðbjörgu Ellerup, og börnum hennar í aðdraganda játningarinnar og svo í kjölfar hennar. Þátturinn hefur vakið gríðarlega athygli enda ekki mörg fordæmi fyrir því að fylgst sé þetta náið með fjölskyldum raðmorðingja á jafn stórri stund og þessari.
„Ég er hrædd, það leikur enginn vafi á því,“ sagði Ása áður en hún hitti Rex. „Ég er hrædd en ég er með spurningar sem ég vil að hann svari. Sú fyrsta er: Myrtir þú einhverja af þessum konum? Og sú næsta verður svo: Hversu margar þeirra myrtir þú?“

Myndavélarnar fengu ekki að fara inn í herbergið þar sem Rex játaði en Ása lýsir því svo að hann hafi verið nokkuð taugaóstyrkur. Hún fékk svörin sem hún vildi. Rex játaði að hafa myrt átta konur. Flestar þeirra, eða sjö þeirra, á heimili fjölskyldunnar í Long Island og af þeim myrti hann eina í hjónarúmi hans og Ásu.
Fyrstu konuna, Söndru Costilla, myrti Rex árið 1993. Hann segir að hún hafi verið hans fyrsta fórnarlamb. Hann hafi myrt hana í hvatvísi í bifreið sinni. Næst kom Karen Vergata. Hana myrti Rex í apríl árið 1996, nokkrum dögum áður en hann flaug til Svíþjóðar til að giftast Ásu sem þá var þunguð af barni þeirra. Hann myrti svo sex konur til viðbótar á meðan á hjónabandi þeirra stóð. Öll morðin nema það fyrsta voru þaulskipulögð. Hann nýtti tækifærið þegar Ása og börnin voru að ferðast og tók ferlið um fjóra daga. Áður en hann myrti konurnar, sem allar störfuðu við vændi, vann hann sér inn traust þeirra með því að kaupa þjónustu þeirra með hefðbundnum hætti. Þannig treystu þær sér til að koma með honum heim, grunlausar um það sem beið þeirra. Fyrsti dagurinn fór þannig í að vinna sér inn traust. Daginn eftir hófst leikurinn þar sem hann myrti þær og losaði sig við lík þeirra. Þriðja daginn helgaði hann þrifum og tók svo fjórða daginn frá fyrir neyðartilvik. Rex greindi dóttur sinni frá því eftir að hann játaði að morðleiðarvísir sem fannst á gamalli tölvu hans hafi verið hans tilraun til að sefa myrkar hvatir sínar. Skjalið útbjó hann árið 2000 , en sama ár myrti hann Valerie Mack og aflimaði lík hennar.
Margir hafa velt því fyrir sér hvort að Rex beri ábyrgð á fleiri morðum en þessum átta sem hann hefur játað. Sálfræðingurinn Alison Winter segir að Rex hafi lýst því svo að hann hafi hætt árið 2010. Þá hafi hann verið hættur að njóta morðanna. Síðustu tvö morðin hafi ekki verið eins spennandi og hin. Hann var búinn að koma sér upp svo skilvirku kerfi að það tók hann aðeins tæpa mínútu að losa sig við lík á Gilgo-ströndinni. Eins og áður hefur komið fram fundust lík flestra fórnarlambanna á nokkurra mánaða tímabili frá lokum árs 2010 og á fyrstu mánuðum ársins 2011. Eftir þetta hafi Rex ekki treyst sér í frekari morð. Hann óttaðist að lögreglan hefði hendur í hári hans og var í raun sannfærður um að það væri ekki spurning um hvort heldur hvenær.
Eins og aðrir siðblindingjar getur Rex ekki svarað því með skýrum hætti hvers vegna hann fann fyrir þessum blóðþorsta. Fyrsta morðið var óvænt en það kveikti á þessari hvöt og hann gat ekki hætt. Þetta varð leikur fyrir honum, leikur sem hann taldi sig góðan í.
Ása lýsti því í þættinum að hún sofi nú í kjallaranum þar sem flest morðin áttu sér stað. Þetta geri hún sökum sektarkenndar. Þarna hafi konur mætt örlögum sínum og þar dvelur Ása í dag og reynir að sofa þrátt fyrir martraðirnar sem ásækja hana. Margir hefðu eflaust talið að Ása myndi nú snúa baki við fyrrverandi eiginmanni sínum en það er ekki svo. Hún hefur nú sætt sig við það að hann sé raðmorðingi. Hann hafi lifað tvöföldu lífi. Hún sér það illa í honum. En hún vill kynnast þessari hlið hans sem hann faldi fyrir henni, hún vill skilja hvers vegna hann gerði það sem hann gerði og hvað olli því. Samkvæmt þættinum hefur hún hitt hann 12 sinnum síðan hann játaði.
Í þættinum mátti sjá fjölskylduna ræða við Rex í gegnum síma. Þar tilkynnti hann syni Ásu, Christopher, að hann væri nú karlmaðurinn á heimilinu. Dóttir Ásu og Rex, Victoria, lýsir því að frá því að faðir hennar var handtekinn hafi líf hennar verið blanda af niðurlægingu, ringulreið, sorg og óvissu.
„Enginn hugsar í raun til dóttur raðmorðingjans. Fólk fer frekar að semja sínar eigin sögur. Þegar ég gekk inn í herbergið sá ég pabba minn, en ekki þetta skrímsli.“