fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Miðaldra par í ævilangt bann fyrir kynferðislegt athæfi um borð í farþegavél í flugi til Kanaríeyja

Pressan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 21:30

Mynd: Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fugfélagið Jet2 hefur sett par á sextugsaldri í ævilangt flugbann hjá félaginu vegna kynferðilegrar hegðunar um borð í flugi til Gran Canaria.

Canarian Weekly greinir frá. Kemur þar fram að farþegum sem sátu nálægt parinu hafi verið mjög misboðið yfir hegðun þeirra sem þó er ekki lýst nánar, nema að hún hafi verið ósæmileg. Ekki síst féll fólki illa að barnafjölskyldur voru um borð í fluginu og mögulega sáu börn til tilburða parsins.

Einn farþeganna sem varð vitni að hegðun parsins gerði starfsfólki viðvart sem ræddi við parið. Báru þau fyrir sig að þau hefðu verið að biðja en ekki stunda kynlíf.

Þrátt fyrir þessa truflun seinkaði fluginu ekki og vélin lenti á Kanaríeyjum á tilsettum tíma. En þegar þangað kom var fólkinu meinað um gistingu á hótelinu sem þau höfðu bókað herbergi á og ennfremur var þeim meinað að fljúga til baka með Jet2.

Í yfirlýsingu frá Jet2 kemur fram að fólkið hafi verið setti í varanlegt bann hjá félaginu. Þar segir jafnframt að Jet2 líði ekki óviðeigandi hegðun farþega.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar