Samúel Kári Friðjónsson er að ganga í raðir Vals frá Stjörnunni. Dr. Football segir frá.
Hinn þrítugi Samúel Kári gekk í raðir Stjörnunnar er hann kom heim úr atvinnumennsku fyrir síðustu leiktíð en virðist nú vera að söðla um innan Bestu deildarinnar.
Samúel Kári var í byrjunarliði Stjörnunnar í fyrstu umferð Bestu deildarinnar gegn KA en var á bekknum og kom inn á sem varamaður í annarri umferð gegn FH.
Stjarnan er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en Valsarar hafa þrjú stig.
Samúel Kári er að ganga til liðs við Val frá Stjörnunni. TicTac pic.twitter.com/7k66hqshkK
— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) April 21, 2026