
Alamara Djabi, leikmaður danska liðsins Midtjylland, varð fyrir alvarlegri stunguárás í Herning aðfaranótt sunnudags. Ástand hans er stöðugt.
Þessi 19 ára gamli miðjumaður gekkst undir tvær aðgerðir og var um tíma í dái, en er nú vaknaður og er sagður á batavegi miðað við aðstæður.
Félagið staðfesti í yfirlýsingu að það sé í nánu samstarfi við yfirvöld og styðji leikmanninn og fjölskyldu hans, en muni ekki tjá sig frekar meðan rannsókn lögreglu stendur yfir.
Lögregla í Danmörku leitar nú að tvítugum manni í tengslum við árásina.
Djabi gekk til liðs við Midtjylland síðasta sumar og hefur meðal annars komið við sögu í undankeppni Evrópudeildarinnar, en ekki fest sig í sessi í aðalliði félagsins.