

Markus Mendler hefur orðið fyrir miklu áfalli eftir að eiginkona hans, Tamara Mendler, lést aðeins nokkrum dögum eftir að hún eignaðist annað barn þeirra.
Mendler var fjarverandi í leik FC Homburg gegn Frankfurt þar sem félagið vísaði í „persónulegar ástæður“. Síðar kom í ljós að eiginkona hans hafði látist aðfaranótt föstudags, aðeins 32 ára gömul, eftir stutt en alvarleg veikindi.
Í yfirlýsingu frá félaginu kom fram að sorgin væri mikil. „Við erum harmi slegin og í áfalli yfir fráfalli eiginkonu Markusar. Hún lést allt of ung og missirinn er ólýsanlega sár, sérstaklega þar sem hún eignaðist heilbrigt barn aðeins dögum áður,“ sagði meðal annars.
Tamara var sjálf knattspyrnukona og lék áður með kvennaliði 1. FC Saarbrücken í 2. deild. Hún var þar mikilvægur hlekkur bæði innan vallar sem utan og naut mikillar virðingar meðal liðsfélaga.
Mendler hóf feril sinn hjá Saarbrücken áður en hann gekk til liðs við Homburg árið 2021. Félagið og knattspyrnusamfélagið hafa sent fjölskyldunni samúðarkveðjur á þessum erfiða tíma.