

Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur orðið fyrir fjárhagslegu tjóni eftir að veitingastaður hans fór í þrot.
Veitingastaðurinn, George’s Dining Room and Bar, sem Giggs opnaði árið 2014 ásamt félögum sínum, hefur ekki getað greitt skuldir upp á rúmlega 563 þúsund pund. Samkvæmt nýjum gögnum hefur fyrirtækið einnig ekki getað greitt um 22 þúsund pund til skiptastjóra.
Giggs sjálfur hefur tapað tæpum 100 þúsund pundum eftir að hafa lagt eigið fé í reksturinn. Þá skuldaði fyrirtækið einnig tugi þúsunda punda í skatta, bankalán og laun starfsmanna
Skiptastjórar staðfestu að ekki yrði greitt út til kröfuhafa þar sem eignir félagsins dugðu ekki til.
Þetta er áfall fyrir Giggs sem hefur annars haldið sér við í fótboltaheiminum eftir að ferlinum lauk. Nýlega tók hann til að mynda þátt í leik með goðsögnum Manchester United í Suður-Kóreu.