
Samkvæmt frétt Majorca Daily Bulletin er aðgerðin bein afleiðing af samningi yfirvalda á eyjunni við Airbnb um að eyða rúmlega 8.000 ólöglegum auglýsingum um útleigu húsnæðis fyrir ferðamenn.
Hægt var að grípa til þessara aðgerða eftir mikinn fjölda skoðana eftirlitsmanna og með samningnum við Airbnb.
Heimamenn hafa mótmælt víða á Spáni á síðustu árum vegna hins mikla ágangs ferðamanna og hefur borið einna mest á mótmælunum á Mallorca.