fbpx
Fimmtudagur 30.apríl 2026
Fókus

Gleðifréttir rúmu ári eftir harmleikinn í lífi leikkonunnar

Fókus
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 08:46

Aubrey Plaza á von á sínu fyrsta barni. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Aubrey Plaza á von á sínu fyrsta barni með leikaranum Christopher Abbott, samkvæmt heimildum People.

Parið á von á barninu í haust, en aðeins er rúmt ár liðið frá hörmulegu andláti fyrrverandi eiginmanns hennar, Jeff Baena, sem svipti sig lífi í janúar í fyrra.

Plaza er 41 árs en Abbott 40 ára og eru þau sögð afar þakklát og spennt fyrir komandi tímum.

Plaza og Abbott hafa þekkst um árabil en þau kynntust árið 2019 við tökur á sjálfstæðu kvikmyndinni Black Bear. Síðar léku þau saman á sviði í Off-Broadway uppsetningu leikritsins Danny and the Deep Blue Sea árið 2023.

Parið vakti síðast athygli opinberlega í febrúar þegar þau mættu saman á tískusýningu New York Fashion Week, þar sem þau sátu saman í fremstu röð.

Abbott er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sitt í HBO-þáttunum Girls. Hann hefur einnig komið fram í myndum á borð við First Man, Poor Things og Kraven the Hunter. Plaza sló fyrst í gegn í þáttunum Parks and Recreation og þá fór hún með eitt af aðalhlutverkunum í annarri þáttaröð White Lotus.

Ekki hefur verið greint frá kyni barnsins.


Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél
Fókus
Fyrir 1 viku

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“