fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Eyjan
Laugardaginn 4. apríl 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísla saga Súrssonar fjallar um gáfaða, óhamingjusama og óheppna glæponinn sem dæmdur var í útlegð. Hann var hundeltur um alla Vestfirði af féndum sínum og drepinn eftir frækilega vörn. Ágúst Guðmundsson gerði fallega mynd um útlagann og dapurleg örlög hans þar sem ungur og fríður Arnar Jónsson lék Gísla.

Helsti andstæðingur Gísla var maður að nafni Börkur digri Þorsteinsson, bróðir Þorgríms sem Gísli drap og eiginmaður Þórdísar systur Gísla. Þessi fjölskylda var reyndar martröð fjölskylduráðgjafanna á Ísafirði. Berki tókst að lokum að drepa útlagann sem varð til þess að Þórdís eiginkona skildi við hann og rak hann að heiman.

Sagan hallar mjög á Börk til að gera hlut Gísla sem mestan. Ótíndur glæpon er gerður að hetju en fulltrúi réttvísinnar að feitum skúrki.

Ég hitti Börk digra á dögunum á líkamsræktarstöð. „Þessi neikvæða afstaða til mín í sögunni byggir á fitufordómum,“ sagði Börkur þunglega. „Gísli fyrrum mágur var þvengmjór og samsvaraði vel öllum fergurðarviðmiðum samtímans. Hann var með litað og liðað hár og og tattú og bótox í vörunum. Ég á hinn bóginn var alltaf í ofþyngd sem skýrir viðurnefnið hinn digri.

Þrátt fyrir óteljandi megrunarkúra gekk mér ekkert að grennast. Ég fór í gulrótarsafamegrun í Hveragerði og eplaedikskúrinn, greipaldsinskúrinn, ketókúrinn og 5/2 kúrinn. Eftir alla þessa misheppnuðu kúra var ég farinn að sætta mig við offituna. Fitusmánunin minnkaði líka í samfélaginu.

En nú er þetta gjörbreytt. Megrunarkúrarnir eru orðnir mun róttækari. Fólk lætur breyta meltingarveginum varanlega með aðgerð. Vinsælast er ævilöng sprautumeðferð til að minnka matarlystina. Fyrirtækið Novo Nordisk hefur gjörbreytt efnahag Danmerkur til hins betra.

Nú er eitthvað bakslag hlaupið í fitubollumeðferðina því að þeir auglýsa í sjónvarpinu með gamaldags fitufordómum. Feitar óhamingjusamar konur kallast á við grannar hamingjusamar fegurðardísir. Hvert sem ég kem eru einhverjir leiðindaskarfar að reka áróður fyrir sprautumegrun. Mig langar mest til að reka þessa besserwisssera í gegn með steikarhníf!“ Börkur þagnaði og þerraði tár. „Þetta kemur ofan í erfiðan skilnað og búferlaflutning og veldur mér mikilli vanlíðan. Ég vil bara fá að vera sá sem ég er!“

„Já,“ sagði ég, „Það er alltaf sorglegt þegar markaðsöflin taka yfir heilbrigðiskerfið og stjórna staðalímyndum. En þetta snýst líka efnahag Danmerkur. Allir sem elska Dani eiga að sprauta sig með Wegovy til að bjarga hagvexti landsins. Við erum gömul dönsk nýlenda og þess vegna ber okkur öllum bæði feitum og grönnum skylda til að nota lyfið í þágu Danakonungs!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga