fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Jólamatur á Ítalíu varð mæðgum að bana – morðrannsókn hafin

Pressan
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalskir saksóknarar hafa hafið morðrannsókn vegna andláts móður og ungrar dóttur hennar sem létust með nokkurra klukkustunda millibili eftir jólamáltíð á suðurhluta Ítalíu í desember síðastliðnum

Mæðgurnar, hin 50 ára Antonella Di Ielsi og 15 ára dóttir hennar Sara Di Vita, voru lagðar inn á Cardarelli-sjúkrahúsið í Campobasso eftir að hafa veikst alvarlega á jóladag.

Í fyrstu töldu læknar að um hefðbundna matareitrun væri að ræða eftir máltíð sem fjölskyldan hafði neytt 23. desember.

Nú hefur rannsóknin tekið nýja stefnu eftir að sýni sem tekin voru leiddu í ljós ummerki um rísín sem er afar banvænt eiturefni. Samkvæmt ítölskum miðlum er enginn grunaður í málinu að svo stöddu.

Mæðgurnar höfðu að sögn borðað fisk og ýmiss konar sjávarfang, þar á meðal krækling, en slíkir réttir eru algengir á jólaborðum í Molise-héraði á Ítalíu.

Þær sýndu báðar sömu einkenni, þar á meðal ógleði og mikla kviðverki. Þrátt fyrir það voru þær útskrifaðar tvisvar af sjúkrahúsinu, 25. og 26. desember, þar sem læknar töldu veikindin líklega stafa af fiski eða sveppum sem einnig voru á boðstólum.

Skömmu síðar versnaði ástand þeirra hratt. Þær voru þá lagðar inn á ný, en létust báðar á sjúkrahúsinu með aðeins nokkurra klukkustunda millibili.

Í fyrstu beindist rannsóknin að mögulegum læknamistökum og þeir læknar sem útskrifuðu þær voru rannsakaðir vegna gruns um manndráp af gáleysi. Niðurstöður eiturefnarannsóknar hafa aftur á móti orðið til þess að málið er nú rannsakað sem mögulegt morð.

Fjölskyldan er frá Pietracatella, litlum fjallabæ í Molise-héraði, þar sem hún er vel þekkt. Faðirinn, Gianni, sem einnig borðaði máltíðina, lifði af en lá um tíma á gjörgæsludeild á sérhæfðu sjúkrahúsi í Róm eftir að hafa verið fluttur þangað með þyrlu í alvarlegu ástandi.

Rísín telst eitt hættulegasta náttúrulega eitur sem þekkist. Jafnvel örlítið magn getur valdið snöggri líffærabilun og dregið fólk til dauða á skömmum tíma, yfirleitt 3-5 dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn