fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Þórður telur stöðuna í Kópavogi mjög slæma – „Myndi mæla með að vera alls, alls ekki að kaupa“

433
Þriðjudaginn 17. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Einarsson, yfirþjálfari hjá Þrótti telur stöðu Breiðabliks ekki góða og segir það kvíðavaldandi að skoða ársreikning félagsins.

Þórður skellti fram skoðunum sínum um ársreikning Breiðabliks á X-inu fyrir helgi. „Það er áhugavert að skoða ársreikninga fótboltafélaga, sá áhugaverðasti er reikningur Breiðablix! Ég ómenntaður endurskoðandinn, myndi mæla með að vera alls,alls ekki að kaupa leikmenn inn & þá allra síst eldri leikmenn! Ársreikningur Breiðabliks er alvöru kvíðavaldandi stöff!,“ skrifaði Þórður í færslu á X-ið.

Sjáðu meira:
Uppgjörið í Kópavogi vekur mikla athygli: Hagnaðurinn svakalegur og eiga verðbréf fyrir 180 milljónir

Rekstur knattspyrnudeildar Breiðablik var umfangsmikill á árinu 2025 en velta ársins nam 1349 milljónum. Hagnaður ársins var rúmlega 167 milljónir samanborið við tæplega 104 milljóna króna tap árið áður.

Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks tók ekki í sama streng. „Hvað er svona kvíðavaldandi?,“ sagði Flosi.

Þórður var fljótur til svars og útskýrði mál sitt. „Eigum við að byrja á tekjur af mótum sem voru 920m vs 269m árið á undan & á næsta ári lítur út fyrir að það verði hrun í þessum tekjum? Eigum við að taka leikmannasölur sem að bæði nafnverði og sannlega raunverði langt undir fyrri árum sem er afleiðing af fremur gömlu liði,“ segir Þórður.

„Eigum við að líta á kostnað við þjálfun, leikmenn & yfirstjórn sem hækkaði um rúmar 200m milli ára? Eigum við að bera þetta saman við afgang Víkinga þegar þeir léku síðast í Sambandsdeildinni? 167m vs 416m gríðarlegur munur sér í lagi uppreiknað!,“ segir Þórður.

Hann telur stöðuna í Kópavogi grafalvarlega. „Svo væri gaman að rýna í sundurliðun á viðskiptaskuldum sem fóru úr 86m yfir í 170m á árinu sem er að líða Það er líka erfitt að átta sig á hvað felst í 130m kr viðskiptakröfum vs 51m frá árinu á undan, & óvíst hve hátt hlutfall innheimtist ef tekið er mið af hækkun á þessum lið.“

„Svo er það handbært fé: Breiðablik í evrópu en ekki meistarar = handbært fé úr 300m niður í 183 Breiðablik í Sambandsdeild= handbært fé úr 183m í 300m að nýju. Breiðablik á næsta ári, hvorki í evrópu né sambandsdeild karla megin,“ segir Þórður um stöðu mála í Kópavogi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega
433Sport
Í gær

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þreyttir á þrálátum meiðslum og horfa til Portúgal

Þreyttir á þrálátum meiðslum og horfa til Portúgal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku
433Sport
Fyrir 2 dögum

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar