fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Bíllausir dagar? Íhuga neyðaraðgerðir til að takmarka akstur fólks

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi eru nú að meta hvort grípa eigi til neyðaraðgerða sem gætu sett takmarkanir á akstur almennings ef þrengir að framboði eldsneytis á heimsvísu.

Áformin koma í kjölfar aukinnar spennu á alþjóðlegum mörkuðum vegna átakanna í Mið-Austurlöndum sem þegar hafa haft áhrif á olíuverð.

Að sögn fjármálaráðherrans, Nicola Willis, hafa embættismenn farið yfir löggjöf sem var upphaflega sett í kjölfar írönsku byltingarinnar árið 1979. Þá varð veruleg röskun á olíuframleiðslu sem leiddi til snarprar hækkunar á heimsmarkaðsverði og knúði mörg ríki til að grípa til skömmtunar og annarra neyðarráðstafana.

Í frétt News.com.au kemur fram að með vísan til þessarar heimildar gætu yfirvöld krafist þess að bíleigendur tilnefndu einn dag í viku þar sem þeim væri óheimilt að aka ökutækjum sínum. Brot á slíkum reglum gætu varðað háum sektum.

Slíkar aðgerðir voru áður þekktar sem svokallaðir „bíllausir dagar“ og voru í gildi á Nýja-Sjálandi frá júlí 1979 til maí 1980. Þá þurftu ökumenn að hafa sýnilegan límmiða í framrúðu bifreiða sinna sem gaf til kynna hvaða dag þeir máttu ekki aka. Undanþágur voru veittar til ákveðinna lykilstarfsmanna og í neyðartilvikum.

Umræða um mögulega endurvakningu slíkra ráðstafana hefur þegar vakið deilur innanlands. Stuðningsmenn telja þær geta reynst nauðsynlegar til að tryggja stöðugleika í framboði eldsneytis á tímum alþjóðlegrar óvissu, en gagnrýnendur óttast að þær muni hafa víðtæk áhrif á daglegt líf almennings og atvinnulíf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn