fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Ný rannsókn: Svona geturðu hægt á öldrun líkamans

Pressan
Miðvikudaginn 11. mars 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagleg inntaka á ódýru fjölvítamíni gæti hægt á líffræðilegri öldrun líkamans, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtust í vísindaritinu Nature Medicine.

Í rannsókninni kom fram að eldra fólk sem tók fjölvítamín daglega í tvö ár sýndi merki um hægari líffræðilega öldrun, byggt á mælingum á breytingum í frumum líkamans. Áhrifin samsvöruðu því að líffræðilegur aldur þátttakenda lækkaði um um það bil fjóra mánuði.

Þegar fólk eldist verða frumur líkamans smám saman fyrir skemmdum. Frumurnar geta þá losað efni sem valda bólgum á sama tíma og viðgerðarkerfi líkamans verður síður skilvirkt.

Með tímanum eykur þetta hættuna á hinum ýmsu sjúkdómum, til dæmis krabbameini, heilabilun og hjartasjúkdómum.

Í rannsókninni var líffræðilegur aldur nærri 1.000 heilbrigðra einstaklinga mældur og voru notuð blóðsýni til að greina aldurstengdar breytingar í DNA.

Sýnin voru tekin í upphafi rannsóknarinnar og aftur eftir eitt og tvö ár. Vísindamenn notuðu svonefndar epigenetískar klukkur til að meta líffræðilegan aldur, en þær fylgjast með breytingum í DNA sem endurspegla hversu hratt líkaminn eldist.

Niðurstöðurnar sýndu að þeir þátttakendur sem tóku fjölvítamín sýndu merki um hægari öldrun samkvæmt þeim mælingum sem notaðar voru í rannsókninni, samanborið við þá sem fengu lyfleysu. Áhrifin voru mest hjá einstaklingum sem í upphafi rannsóknarinnar virtust eldast hraðar líffræðilega en raunaldur þeirra gaf til kynna.

Rannsókninni var stýrt af vísindamönnum við Massachusetts General Brigham og segja aðstandendur hennar að niðurstöðurnar bendi til þess að fjölvítamín geti verið einföld og aðgengileg leið til að styðja við heilbrigðari öldrun, þó að áhrifin sem mældust hafi verið tiltölulega lítil.

Fjölvítamín innihalda yfirleitt vítamín á borð við A-, C-, D-, E- og B-vítamín auk steinefna eins og sinks, magnesíums og járns sem geta hjálpað til við að bæta upp mögulegan skort á næringarefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn