fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 9. mars 2026 17:30

Myndbandið er bull.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TikTok myndband gengur nú eins og eldur í sinu um netheima þar sem fullyrt er að fólk fái tilkynningu frá Íslendingabók sé því flett þar upp. Myndi þetta setja strik í reikninginn varðandi viðreynslur og geta valdið vandræðalegum uppákomum.

„POV: Íslendingar þegar þau fatta að fólk fær notification þegar þú skoðar þau á Íslendingabók,“ segir í stuttu myndbandi sem gengur nú um netheima. Á bak við skilaboðin má sjá Auðunn Blöndal með vandræðalegan svip sem á að lýsa tilfinningunni sem lýst er.

Vörn fyrir blóðskömm

Sagt hefur verið um Íslendingabók að fólk fletti gjarnan upp þeim sem það hefur áhuga á. Það er til þess að skoða hversu skyld eða skyldur viðkomandi er manni. Ekki vill maður lenda í því að makast með náfrænku eða frænda sínum þó óumflýjanlegt sé að tveir Íslendingar séu skyldir á einhvern hátt.

Er þetta í raun einstakt og hefur því frægð Íslendingabókar náð út fyrir landsteinana þar sem erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um síðuna og gagnsemi hennar til þess að koma í veg fyrir sifjaspell og blóðskömm.

Þvæla

En er þetta rétt? Fær fólk tilkynningar þegar því er flett upp? Svarið er einfaldlega nei.

„Vegna fyrirspurnar þinnar um TikTok myndband um Íslendingabók og af gefnu tilefni vil ég taka það fram að notendur Íslendingabókar fá ekki tilkynningu þegar einhver flettir þeim upp. Það  hafa engar slíkar breytingar átt sér stað hjá okkur og stendur ekki til að gera á vefsíðu Íslendingabókar,“ segir Kristrún Halla Helgadóttir hjá Íslenskri erfðagreiningu, sem rekur Íslendingabók, í svari við fyrirspurn DV um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum