fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Útskrifaðist með 9,7 í meðaleinkunn en gat ekki lesið sér til gagns

Fókus
Laugardaginn 7. mars 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríkjamenn ljúka skyldunámi við 18 ára aldur eftir gagnfræðaskóla (e. high school). Þaðan liggur leiðin svo í háskólann en til þess að komast í góðan skóla þarf að útskrifast með góða einkunn.

Makena Simonsen náði þeim góða árangri þegar hún lauk gagnfræðaskólanum sínum í Washington að næla sér í 9,7 í meðaleinkunn. Flestar ungar konur væru ánægðar með svona góða einkunn, en ekki Makena. Þessi einkunn hafi ekki átt nokkra stoð í raunveruleikanum og hafi í reynd rústað framtíðardraumum hennar.

Makena glímir nefnilega við greindarskerðingu og hefur hlotið sérkennslu alla sína skólagöngu. Eftir skyldunámið langaði hana að skrá sig í ókeypis starfsnám þar sem ungu fólki með sérþarfir er kennt að aðlagast og lifa sjálfstæðu lífi. Umsókn hennar var þó hafnað þar sem skólinn taldi hana ekki uppfylla skilyrðin fyrir starfsnáminu – hún væri greinilega ekki með sérþarfir fyrst hún hafði lokið venjulegu stúdentsprófi með láði.

Makena þurfti því að skrá sig í starfs- og lífsleikninám hjá Bellevue-háskólanum en það nám er rándýrt, eða um fimm milljónir fyrir árið.

Hún hefur nú stefnt skólaumdæminu sínu og segist hafa orðið fyrir vanrækslu í menntakerfinu sem og mismunun. Samkvæmt stefnunni gat Makena ekki lesið sér til gagns við útskriftina. Lestrarfærni hennar var á pari við sex ára barn sem og stærðfræðikunnátta hennar. Skólinn hafi engu að síður leyft henni að fara hefðbundna leið í gegnum skólakerfið og þar að auki gefið henni frábærar einkunnir sem engin innistæða var fyrir enda ljóst að Makena hafði ekki burði til að skilja námsefnið sem hún var prófuð úr. Hún átti erfitt með að telja klink en fékk engu að síður 10 í stærðfræðiáföngum.

Með því að greiða leið hennar í gegnum hefðbundið skólakerfi með þessum hætti og með því að veita henni stúdentspróf hafi Makena verið rænd tækifærum. Hún hefði frekar átt að fá sérstaka diplómu sem tók mið af raunverulegri getu hennar og sérþörfum. Samkvæmt stefnunni hefur Makena loksins fundið sig í starfsnáminu sínu, en það taki mið af sérþörfum hennar og getu. Hún fái nú einkunnir sem hún eigi raunverulega skilið. Hún hafi þó verið svipt tækifærinu á að sækja ókeypis starfsnám í skólaumdæmi sínu og muni nú sitja uppi með margar milljónir í námslán.

People greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum