fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Pressan

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 09:30

Pútín hefur ekki getað komið vinum sínum til aðstoðar? Mynd:EPA/Sputnik

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og drápið á Ali Khamenei, æðstaklerki, afhjúpaði að stöðu Rússlands sem stórveldi á heimsvísu er ógnað. Árásin sýndi að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, getur ekki verndað bandamenn sína.

Þetta sagði Poul Eris Skammelsen, fyrrum fréttamaður TV í Moskvu, í samtali við TV2.

„Pútín er veikari en áður. Stríðið í Úkraínu gerir að verkum að hann getur ekki lengur látið til sín taka í heiminu, eins og hann gerði til dæmis með Assad í Sýrlandi. Þetta sýnir að bandamenn Rússlands geta ekki lengur reiknað með að fá vernd ef Bandaríkin ráðast á þá,“ sagði hann.

Þetta var í þriðja sinn á fáum árum sem Pútín hefur neyðst til að standa á hliðarlínunni á meðan nánir bandamenn hans missa völdin.

Í desember 2024 missti Bashar al-Assad, Sýrlandsforseti, völdin þegar uppreisnarmenn sóttu að honum. Í janúar á þessu ári handtóku Bandaríkjamenn Nicolas Maduro, forseta Venúsela, í hernaðaraðgerð og nýlega kom röðin svo að andlegum leiðtoga Íran sem var drepin í loftárás á Teheran.

„Árásin á Íran og drápið á Khamenei sýnir að hlutverki Rússlands sem stórveldis er ógnað. Íran og Rússland hafa áratugum átt sameiginlegan óvin í Bandaríkjunum og hinni vestrænu heimsskipan. Samt sem áður hafa nánast engin viðbrögð komið frá Rússum,“ sagði Skammelsen.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Í gær

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Í gær

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins