

Anna Kristjánsdóttir, fyrrum vélstjóri og þekktasti Tenerife íbúi þjóðarinnar, er á fullu að undirbúa flutning sinn til Íslands í vor. Hluti af flutningunum fólkst í losa sig við íbúðina sem hún hefur leigt þar ytra. Það gekk ekki áfallalaust fyrir sig eins og Anna segir frá í daglegum pistli sínum:
„Tvær konur sem búa í nágrenninu voru tilbúnar til að taka yfir leiguna á íbúðinni sem ég bý í. Báðar bjuggu þær í litlum íbúðum með einungis einu svefnherbergi og með litlum svölum. Önnur þeirra sóttist stíft eftir íbúðinni minni og því óskaði ég þess sérstaklega við leigumiðlunina sem og eigandann að hún fengi íbúðina þegar ég héldi til Íslands sem þau samþykktu og tókst mér að ná samkomulagi um ásættanlegt leiguverð fyrir hennar hönd.“
Eftir að hafa staðið í þessari umsýslu fyrir konurnar tvær fékk Anna skilaboð frá þeim báðum:
„Í gærkvöldi fékk ég skilaboð frá umræddri manneskju sem tjáði mér að hún væri hætt við. Hin konan sem einnig bjó of þröngt í næsta íbúðakjarna ofan við mig var sömuleiðis hætt við og nú sit ég uppi með skömmina, að hafa aðstoðað Íslendinga um leigusamning á íbúðinni sem hættu svo við þegar samningurinn var tilbúinn.
Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það.“
Anna endar pistilinn þó á jákvæðum nótum og segir 294 daga til jóla og því gott að fara að gera seríurnar klárar.