fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Hrollvekjandi myndband úr lyftu vekur athygli

Pressan
Fimmtudaginn 5. mars 2026 13:30

Það er martröð að lenda í svona reynslu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þó að lyftur þyki almennt mjög öruggar getur komið fyrir að þær bili. Myndband af atviki sem varð nýlega í fjórtán hæða fjölbýlishúsi í borginni Valsad á Indlandi hefur vakið talsverðan óhug og ekki að ástæðulausu.

Á myndbandinu sést maður að nafni Vatsalbhai Pancha vera að fara út úr lyftu þegar hún skýst skyndilega upp.

Á upptökunni sést Pancha bíða eftir að dyrnar opnist og þegar það gerist tekur hann skref út á ganginn. Fyrirvaralaust skýst lyftan upp og réði hending því að Pancha klemmdist ekki á milli.

Í frétt The Sun kemur fram að talið sé að alvarleg rafmagnsbilun hafi valdið því að svona fór. Rannsókn á biluninni stendur þó yfir.

Pancha slapp ekki alveg ómeiddur því hann rak höfuðið í og hlaut áverka þegar hann skall á gólfið fyrir utan lyftuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn