fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 14:30

Frjóvgun eggs er kraftaverki líkast og sæðið þarf að vera vel synt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn tókust nýlega það verkefni á hendur að mæla gæði sæðis karla og var notast við sæði úr körlum í Flórída í Bandaríkjunum og Danmörku. Komu niðurstöðurnar vísindamönnum nokkuð á óvart.

Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Reproductive Biology and Endocrinology, var sæði úr rúmlega 15.500 körlum, á aldrinum 18 til 45 ára, rannsakað. Niðurstaðan var geta sæðisins til að synda er mest í júní og júlí og á það við um sæði úr bæði dönsku og bandarísku körlunum. Skiptir þá greinilega engu að loftslagið er ansi ólíkt í löndunum tveimur.

Einnig kom í ljós að sundhæfnin er minnst í desember og janúar og er þá rétt að hafa í huga að það er heitt í Flórída allt árið en ekki í Danmörku.

Allan Pacey, prófessor við University of Manchester, er meðhöfundur rannsóknarinnar. Í samtali við BBC sagðist hann mjög hissa á niðurstöðunum: „Okkur var brugðið vegna þess hversu keimlíkt árstíðamynstrið er í  mismunandi loftslagi. Meira að segja í Flórída, þar sem alltaf er heitt, voru sæðisgæðin best á sumrin og minni á veturna. Þetta segir okkur að lofthitinn einn er líklega ekki skýringin á þessu.“

Sæðisgæðin virðast því sveiflast eftir árstíðunum sem hafa meiri áhrif á gæðin en hitastigið eitt.

Að meðaltali er kjörhitastigið fyrir eistun tveimur til fjórum gráðum lægra en eðlilegur líkamshiti upp á 37 gráður. Hærri eða lægri hiti en það getur haft neikvæð áhrif á frjósemina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn