fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Þumalfingurinn getur sagt til um hugræna getu þína

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höndin og heilinn hafa þróast „hönd í hönd“ í gegnum sögu okkar prímatanna og hefur þumalfingurinn gegnt mikilvægu hlutverki í þróun hugrænnar getu okkar mannanna.

Vísindamenn við University of Reading rannsökuðu 94 prímatategundir og komust að því að þeim mun lengri sem þumalfingurinn er í samanburði við hina fingurna, þeim mun stærri er heilinn, sérstaklega svæðið sem gegnir lykilhlutverki þegar kemur að skipulagningu og talmálinu.

Þróun þumalfingursins og heilans virðist hafa haldist hönd í hönd þar sem fingrafimin fylgdi stækkun heilasvæðisins sem tengist hugsun og fleiru.

Vísindamennirnir leggja áherslu á að niðurstaðan gildi fyrir tegundir en ekki einstaklinga. Það að vera með langan þumalfingur sé því ekki ávísun á að viðkomandi sé mjög gáfaður. Lengd þumalfingursins er því ekki það sama og greindarpróf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn