fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
433Sport

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

433
Föstudaginn 27. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.

ÍBV kemur inn í mótið með nýjan þjálfara, Aleksandar Linta, sem tekur við af Þorláki Árnasyni, sem hætti óvænt eftir að hafa náð frábærum árangri með nýliðana í fyrra.

video
play-sharp-fill

Eyjamenn fóru í þjálfaraleit og var Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, sterklega orðaður við liðið.
„Þeir fóru svolítið langt niður á blaðinu sínu. Maður hélt þeir væru að landa Aroni frá Víkingi. Það voru nokkrir búnir að segja takk en nei takk.

Þetta hefur svolítið borið þess merki að vera vandræðagangur og það stappar ekki stálinu í neinn,“ sagði Jóhann.

„Að því sögðu þá hafa þeir verið gjarnir sögulega séð á að koma með leikmenn seint inn í þetta. Ef það gerist núna gætu þeir komið okkur á óvart,“ bætti hann við.

„Þeir geta stungið upp í mann, eins og þeir sannarlega gerðu í fyrra,“ skaut Sigurbjörn inn í.

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
Hide picture