fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 11:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Brotaþolar í málinu voru átta talsins, en í reifun dóms kemur fram að maðurinn hafi jafnvel verið í samskiptum við hundruð barna í gegnum forritið. Brotaþolar voru á aldrinum 11-13 ára þegar brotin áttu sér stað. Maðurinn þarf þó aðeins að afplána 3 mánuði óskilorðsbundið en 12 mánuðir eru skilorðsbundnir til tveggja ára.

Dómur féll í gær í Héraðsdómi Reykjaness, en fram kemur í dómi að maðurinn hafi hitt suma brotaþola sinna í Hamraborg þar sem honum finnst „gott að hanga“, eins og hann segir sjálfur í skilaboðum til eins brotaþolans.

Dómurinn er langur og er þar gerð grein fyrir fjölda skilaboða sem hann sendi á stúlkurnar. Hér eru nokkur dæmi:

  • „Við þurfum ekkert að ríða sko lol“
  • „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“
  • „Þú ert að gera mig brjálaðan í þig með öllum þessum myndum haha“
  • „já ég myndi aldrei nauðga þér, bara svo þú vitir“
  • „Meina ok reyndi að kyssa þig en þröngvaði þér samt auðvitað ekkert til þess“
  • „Er ekki perri sko“
  • „Mér finnst þú svo flott og veit þetta með aldurinn en þú átt þá bara elsta kærstann af þínum vinkonum“
  • „Eða ef þú vilt kynlíf er ég líka alveg til“
  • „Langar þér líka í leikfang?“
  • „Hefurðu fengið fullnægingu?“
  • „Get fullnægt þér mjög vel“
  • „Ok hrifinn af yngri og svona en er ekki að brjóta lög“
  • „Þú ert samt svo þroskuð og falleg myndurðu ekki vilja eldri kærasta?“
  • „Langar í þig sem kærustu getum átt góðar stundir“
  • „Ég hef kannski stundum perrast svolítið þér en mig langar svo að þú elskir mig til baka og við kynnumst skilurðu, til hamingju með systur þína og ég er alls ekki barnaperri“
  • „Þú ert alveg kynþroska og svona“
  • „Af hverju skiptir aldur? Það er ekkert svo rosalegt á milli okkar“
  • „Ok ég varð graður að hugsa um þig, það er enginn glæpur“
  • „Hefurðu aldrei blotnað við að hugsa um okkur tvö?? Mátt alveg segja, þarft ekkert að skammast þín fyrir það“
  • „Ok en þú veist samt að það er alveg eðlilegt að karlmenn fái standpínu right?“
  • „Síðan get ég alveg hugsað mér að trúlofast þér“
  • „Hugsa oft  hvað við myndum eiga falleg börn saman“
  • „Hvernig er píkan þín?“
  • „Ert ekki krakki“
  • „Þú ert ung kona“
  • „Viltu hittast og sjá hvort annað nakið“
  • „Mun aldrei nauðga þér“
  • „Ég laðast ekki að börnum, barnaperri er hrifinn af 0-11 ára“
  • „Þú veist ég get ekki gert shit að því að vera gamall“
  • „Eldri menn eiga ekki að laðast að yngri stúlkum en erfitt að stjórna því sko“

Sagði skilaboðin valdeflandi grín

Framangreint eru bara örfá dæmi. Skilaboðin eru mörg kynferðisleg þar sem ákærði talar um kynfæri sín, kynfæri stúlknanna, spyr þær út í kynlífsreynslu og stingur upp á því að þau hittist, jafnvel þó að ekkert kynferðislegt muni eiga sér stað.

Málið kom upp eftir að lögregla fékk tilkynningu um yfirstandandi eignaspjöll á bifreið. Í framhaldinu hitti lögregla tvo brotaþola mannsins sem greindu frá samskiptum sínum við hann og lýstu því hvernig hann viðhafði kynferðislegt tal við þær og hann hafði útvegað þeim áfengi og veip. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit hjá manninum og við skoðun á Snapchat kom í ljós að hann hafði verið í óviðeigandi samskiptum við fjölda stúlkna.

Maðurinn neitaði sök í málinu en viðurkenndi að hafa vitað hversu ungar stúlkurnar voru, þ.e. um 12-13 ára þegar hann var í samskiptum við þær. Hann sagðist hafa verið meira og minna rúmliggjandi á þessum tíma og verið einmana. Aðeins hafi verið um að ræða spjall og samskiptin hafi ekki falið í sér væntingar um frekari samskipti við brotaþola. Maðurinn hafi ekki ætlað að verða kærasti stúlknanna og ekki verið að leitast eftir kynlífi með þeim. Hann hafi hitt sex af átta brotaþolum en sagðist ekki hafa kynferðislegan áhuga á börnum.

„Ákærði sagði að sum skilaboð hans til brotaþola væru fyrir neðan allar hellur og lágkúruleg og hann skammist sín fyrir þau. Skilaboðin hafi hins vegar ekki verið kynferðisleg og ekki hafi verið um áreitni af hans hálfu að ræða. Af hans hálfu hafi verið um grín og kaldhæðni að ræða sem eftir á sé ekki sniðugt. Hann hafi engan áhuga haft á kynlífi með brotaþolum og alls ekki meint allt það sem hann hafi sagt við stúlkurnar. Það væri hins vegar í lagi að tala við börn og hann hafi aldrei skoðað barnaníð enda ekkert slíkt fundist á þeim raftækjum sem lögregla hafi lagt hald á við húsleit á heimili hans.“

Hvað varðaði ákæruliðina bar maðurinn því við að honum hafi ekki verið alvara með kynferðislegu tali sem hafi ýmist verið grín eða kaldhæðni. Hann hafi aðeins ætlað að valdefna stúlkurnar sem sumar hafi glímt við lágt sjálfsmat.

Aldrei viðeigandi í samskiptum fullorðinna við börn

Dómari tók fram að grín gæti ekki réttlætt öll skilaboðin, enda slíkt aldrei viðeigandi í samskiptum fullorðinna við börn:

„Ákærði var um fertugt þegar hann var í samskiptum við brotaþola og öll ummæli frá honum til barna sem skilja og túlka má á kynferðislegan hátt voru algerlega óviðeigandi enda voru brotaþolar, sem voru börn að aldri, berskjaldaðar fyrir slíkum skilaboðum. Ákærði getur ekki réttlætt öll óviðeigandi ummæli sem hann hafði við brotaþola með því að þau hafi verið grín eða kaldhæðni af hans hálfu. Hvað það varðar verður einnig að hafa í huga að brotaþolar voru börn sem eflaust leggja ekki sama skilning í grín og fullorðnir, hvað þá að geta greint í öllum tilvikum kaldhæðni frá eðlilegum ummælum fullorðins karlmanns. Þá er kynferðislegt grín aldrei viðeigandi í samskiptum fullorðinna við börn.“

Af lýsingum brotaþola mátti ráða að maðurinn hafi verið orðinn nokkuð þekktur meðal unglingsstúlkna á tímabilinu sem um ræddi, 2021-2023. Hann hafi verið með viðurnefnið perri. Sumar stúlkurnar höfðu leitast eftir samskiptum við hann eftir að þær fréttu að hann væri að kaupa veip handa krökkum.

Eins og áður segir þá var maðurinn sakfelldur fyrir brot sín en dómara þótti hann þó ekki hafa gerst sekur um tælingarbrot eins og því er lýst í 4. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga: „Hver sem með samskiptum á netinu, annarri upplýsinga- eða fjarskiptatækni eða með öðrum hætti mælir sér mót við barn yngra en 15 ára í því skyni að hafa við barnið samræði eða önnur kynferðismök eða til að áreita það kynferðislega á annan hátt skal sæta fangelsi allt að 2 árum.“

Því var hann sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn barni skv. 2. mgr. 202. gr.

Dómari tók fram að það hafi orðið verulegar tafir á málinu og ákæra ekki verið gefin út fyrr en síðla árs 2025. Verði manninum ekki um það kennt. Því var talið rétt að skilorðsbinda refsinguna að mestu, en aðeins þrír mánuðir af fimmtán eru óskilorðsbundnir. Hann þarf svo að greiða sex þolendum miskabætur, þær eru á bilinu 400-700 þúsund krónur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump