fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Þetta er lúxusinn sem hinir ofurgreindu hafa aðgang að

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 21:00

Ætli þeir kaupi lúxusbíla á borð við Porsche?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir berjast við að láta enda ná saman en lítill hópur jarðarbúa býr við allt annan raunveruleika. Þessi hópur veltir sér upp úr lúxusvarningi og þjónustu sem flestir hafa ekki einu sinni heyrt um.

Þetta kemur fram í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit þar sem notendur voru beðnir um að nefna dæmi um hluti sem hinir ofurríku hafa aðgang að. New York Post skýrir frá þessu.

Um 5.000 athugasemdir voru skrifaðar við færsluna og skýrði fólk frá ýmsu ótrúlegu, allt frá framandi dýrum til sérstakra bókasafna og lúxusþjónustu sem gerir að verkum að venjulegur lúxus bliknar í samanburði.

Fyrir marga er það stöðutákn að vera með sundlaug eða tjörn í garðinum sínum en það nægir sumum milljarðamæringum ekki.

„Ég þekki milljarðamæring sem vildi hafa svani syndandi á tjörninni við heimili sitt en varð fyrir vonbrigðum þegar þeir felldu fjaðrirnar og litu illa út. Hann notast því við svanaútleigu sem skiptir reglulega um svanina þannig að þeir líta alltaf fullkomlega út,“ skrifaði einn.

„Orkidíugæsla. Maður fer með orkidíuna sína þegar hún blómstrar ekki og lætur passa hana þar til hún blómstrar aftur. Á meðan fær maður blómstrandi orkidíu með heim svo það eru alltaf blóm í húsinu,“ skrifaði annar.

„Fyrir þá ofurríku, sem vilja eiga klassískt bókasafn með leðurbundnum bókum, eru til fyrirtæki sem setja saman söfn, prenta bækurnar á lúxuspappír og binda þær allar eins inn. Verðið er yfirleitt í milljónum dollara,“ skrifaði einn.

„Þeir ráða menntunarráðgjafa sem ferðast um heiminn og taka þátt í skólakynningum og finna skóla fyrir börn allt niður í 10 ára, sem falla að óskum fjölskyldunnar,“ skrifaði einn notandinn.

„Ég kom eitt sinn í þakíbúð í Miami þar sem búið var að setja fjölda stiga inn svo eigandinn gæti valið þann sem honum féll best við,“ skrifaði enn einn notandinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn