fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Erfa börnin gáfnafarið frá föður eða móður? – Vísindamenn hafa loksins fundið svarið

Pressan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 06:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú þekkir þetta eflaust – þegar barn fæðist byrja allir að tala um að það líkist  einhverjum í fjölskyldunni. „Hann er með nef pabba síns“, eða „Hún líkist ömmu sinni“.

En þegar kemur að greind, þá ímynda margir sér einhverskonar ósýnilega gjöf sem barnið fær við fæðingu eða ekki.

En málið er flóknara en svo því gáfur er ekki bara eitthvað sem börn erfa eins og nefið hans pabba eða augnlitinn hennar ömmu.

Studenti segir að rannsóknir hafi leitt í ljós að erfðir leiki hér ákveðið hlutverk en greind sé ekki bara eitthvað eitt gen sem skipti öllu.

Ímyndaðu þér að greind sé hljómsveit þar sem mörg mismunandi gen spila flókna sinfóníu saman.

Talið er að við fáum tæplega helminginn af greind okkar og andlegri getu að erfðum. Greind er flókin blanda erfða, uppvaxtar og lífsreynslu og hugsanlega kemur mamma meira við sögu en við héldum.

Þegar kafað er ofan í hvar greindargenin fela sig, þá benda rannsóknir á X-litninginn en konur hafa tvo slíka en karlar einn.

Independent segir að vísindamenn í Glasgow hafi fylgst með rúmlega 12.000 börnum í mörg ár og hafi uppgötvað að besta vísbendingin um greind barns sé greindarvísitala móður þess, óháð þáttum á borð við efnahag, kynþátt eða menntun.

Þetta styður við þá tilgátu að ákveðin gen, sem hafa áhrif á getu okkar til að læra, hugsa og skipuleggja, tengist genetísku framlagi móðurinnar.

Þess vegna er hugsanlegt að greind erfist í meiri mæli frá móður en föður.

En þar með er sögunni ekki lokið því það er ekki hægt að afskrifa föðurinn. Innsæi, tilfinningar og aðrir vitsmunalegir hæfileikar, sem eiga oft rætur að rekja til erfðaefnis föðurins, gegna einnig mikilvægu hlutverki.

Þrátt fyrir að erfðir skipti miklu máli þá koma lífsreynsla og samspilið við fólkið í kringum okkur einnig mikið við sögu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér